Marísól og leitin að gleðinni

Freyvangur

•

6 viðburðir

Miðaverð frá

2.500 kr.

  Marísól og leitin að gleðinni  

  

Marísól og leitin að gleðinni er frumsamið barnaverk eftir Jóhönnu S. Ingólfsdóttir með frumsamdri tónlist eftir Eirík Bóasson.


Verkið er hugljúf jólasaga um hana Marísól sem er 10 ára stelpa sem er mjög leið yfir komandi jólum, því pabbi hennar sem er sjómaður þarf að vinna yfir jólin.

Þegar hún er sofnuð á þorláksmessukvöld þá vaknar uppáhalds bangsinn hennar, hann Viktor, til lífsins og fer með hana í ferðalag til að leita að gleðinni.

Þau hitta allskonar fólk á leið sinni, sem hafa öll mismunandi sýn á hvar gleðina er að finna en þegar á heildina er litið þá leynist gleðin í litlu hlutunum, í því sem við gerum fyrir aðra og kemur líklega ávallt frá hjartanu.


Verkið er í leikstjórn Jóhönnu S. Inólfsdóttur og er það einungis rúmur klukkutími að lengd með hléi og henntar því frábærlega fyrir yngstu kynslóðina.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger