Mógil og Orri Huginn – Aðventa í stofunni hjá Gunnari

Gunnarshús Dyngjuvegi 8

•

11. desember

Miðaverð frá

4.900 kr.

  Mógil og Orri Huginn – Aðventa í stofunni hjá Gunnari   

    

Hljómsveitin Mógil býður til einstakrar aðventustundar í stofunni hjá Gunnari Gunnarssyni, þar sem tónlist og bókmenntir fléttast saman í hlýlegu umhverfi.

Á tónleikunum flytur Mógil tónlist af plötunni Aðventa, sem er innblásin af samnefndri skáldsögu Gunnars Gunnarssonar (1889–1975). Sagan segir frá Benedikt og ferðalagi hans um hálendi Íslands í leit að týndu fé.

Orri Huginn Ágústsson leikari les valin brot úr sögunni og gefur orðum Gunnars nýtt líf í einstökum hljóðheimi Mógils.

Þessi sígilda saga öðlast nánd í stofunni þar sem Gunnar bjó og starfaði.  Þar renna orð, tónar og umhverfi saman í heild sem býður gestum að staldra við, hlusta og hverfa um stund inn í heim Aðventu.

Mógil skipa:

Heiða Árnadóttir - söngur

Hilmar Jensson -  gítar

Kristín Þóra Haraldsdóttir - víóla

Eiríkur Orri Ólafsson – trompet

Upplestur - Orri Huginn Ágústsson, leikari.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger