© 2026 Tix Miðasala
P&M salurinn Golfhöllinni
•
15. nóvember
Sala hefst
23. október 2026, 09:00
(eftir 17 klukkustundir)




Í fótspor þeirra
Tónleikar og sögukvöld
Í sumar voru tónleikarnir Í fótspor þeirra haldnir í Svarta kassanum í Hofi á Akureyri við frábærar undirtektir og nær fullu húsi. Nú gefst áhorfendum í Reykjavík tækifæri til að upplifa þetta sérstaka tónlistar- og sögukvöld.
Á tónleikunum fylgjum við slóðum listafólks sem lét rödd sína heyrast og notaði tónlistina til að tjá vonir, mótmæli, frelsisþrá og mannlega reynslu. Á milli laga eru stuttar frásagnir sem tengja saman sögur tónskálda og flytjenda á borð við Billie Holiday, Nina Simone, Joni Mitchell, Kate Bush og fleiri.
Efnisskráin spannar jazz, blues, folk og popptónlist og leiðir áhorfendur í gegnum ólík tímabil og ólíka baráttu fyrir sýnileika, frelsi og réttlæti. Þar mætast sögur svartra listamanna, kvenna og hinsegin fólks sem hafa haft áhrif á samfélagið með tónlist sinni.
Tónleikarnir eru jafnframt persónuleg ferð þar sem frumsamin lög tengja sögurnar við samtímann og spyrja hvað þessar raddir geti enn kennt okkur í dag.
Þetta eru því ekki hefðbundnir tónleikar heldur tónlistarleg frásögn um hugrekki, samkennd, sýnileika og von.
Flytjendur
Helga Margrét Clarke – söngur
Aðalheiður Þorsteinsdóttir – píanó
Róberta Andersen – gítar
Ingibjörg Elsa Turchi – rafbassi
Þorsteinn Jónsson - slagverk
Viðburðurinn nýtur stuðnings Kvenréttindafélags Íslands.
Mynd: Sunna Ben
Hönnun: Lilja Hauksdóttir

