© 2026 Tix Miðasala
Hjallakirkja
•
27. - 28. nóvember
Miðaverð frá
4.900 kr.




Svona gerum viđ.. - Jólatónleikar Hinsegin kórsins
Þegar vetur gerir vart viđ sig og daginn tekur ađ stytta þurfum viđ einhvern eđa eitthvađ ađ ylja okkur viđ og vill því Hinsegin kórinn leiđa ykkur ljúflega inn í ađventuna og allar mismunandi ađventuhefđirnar. Viđ skreytum hinsegin jólatréđ og komum pökkunum fyrir undir trénu. Sum okkar blasta jólastöđinni en önnur fussa og sveia yfir ofurvemmilega jólalaginu sem ómar linnulaust í hlustum okkar. Einhver skella The Holiday eđa Home Alone í tækiđ, á međan önnur eiga stefnumót viđ Bridget Jones og syngja All by myself af öllum sálarkröftum. Já, svona gerum viđ þegar viđ höldum upp á ađventuna.
Hinsegin kórinn heldur tvenna jólatónleika í Hjallakirkju, föstudaginn 27. nóvember kl 20:00 og laugardaginn 28. nóvember kl 16:00.
Við fögnum 15 ára afmæli kórsins á þessu starfsári og því vonum viđ ađ viđ sjáum ykkur sem flest!
Kórstjóri Hinsegin kórsins er Helga Margrét Marzellíusardóttir

