© 2026 Tix Miðasala

Fantasía
•
25. nóvember
Miðaverð frá
5.000 kr.




Pétur Ben á Fantasíu
Pétur Ben fagnar fimmtugsafmælinu sínu með tónleikum á Fantasíu þar sem hann fer yfir ferilinn, spilar ný og gömul lög og dregur óvænta ása upp úr erminni.
Pétur Ben er tónlistarmaður sem blandar saman indie, folk og rokki með persónulegu ívafi. Nýverið gaf Pétur frá sér plötuna Painted Blue sem var tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2026. Pétur er þekktur fyrir ófyrirsjáanlegar og fjölbreyttar tónleikaupplifanir þar sem hann fléttar saman eigin ólíkum lagasmíðum við óvæntar og skemmtilegar ábreiður.

