Richard Andersson Trio feat. Sullivan Fortner & Jorge Rossy

Salurinn

•

15. mars

Miðaverð frá

5.900 kr.

Danski bassaleikarinn og tónskáldið Richard Andersson mætir með nýja tríóinu sínu í Salinn. Með honum eru tveir af mögnuðustu nútímadjassleikurum um þessar mundir: bandaríski píanistinn Sullivan Fortner og spænski trommarinn Jorge Rossy, heimsþekktur úr tríóinu Brad Mehldau Trio.

Richard og Sullivan kynntust þegar þeir stunduðu báðir nám í Manhattan School of Music í New York. Sullivan spilaði einnig inn á fyrstu plötu Richards, Please Recycle, árið 2009. Þeir mætast núna aftur og fá til liðs við sig Jorge Rossy, við gerð nýrrar plötu sem ber heitið Please Reuse og mun koma út 15. janúar 2027.

Áhorfendur geta búist við kvöldi fullu af hlýju, sveiflu og náinni tríó jasstónlist. Lagasmíðar eftir Richard ásamt endurútsettum standördum á borð við Comes Love og Time Remembered.

Tónleikarnir eru hluti af Evróputúr tríósins í mars 2027.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger