© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
25. nóvember
Miðaverð frá
5.200 kr.




Björn Thoroddsen, gítar/söngur
Jón Rafnsson, bassi
Fúsi Óttars, trommur
Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það er hann yfirleitt kallaður, hefur verið að hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikum heims. Í þetta skipti kemur Bjössi fram tríói sínu sem er skipað Fúsa Óttars, trommuleikara og Jóni Rafnssyni bassaleikara. Bjössi fer yfir gítarsöguna og spilar og jafnvel syngur, nokkur af sínum uppáhalds lögum. Það verða líka sagðar sögur og ekkert dregið undan.

