© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
14. október
Miðaverð frá
5.200 kr.




Snorri Sigurðarson, trompet
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, trommur
Á tónleikunum mun kvartettinn kafa ofan í samstarf trompetleikarans Art Farmer og gítarleikarans Jim Hall. Samstarf þeirra skilaði eftirminnilegum hljóðritunum á sjöunda áratugnum og síðar þegar þeir tóku upp þráðinn að nýju. Samspil Farmers og Halls einkenndist af einstakri næmni, vönduðu lagavali og ríkulegu rými fyrir spuna. Beint áfram hyggst heiðra þessa tvo meistara jazzsögunnar með eigin túlkunum á tónlist sem tengist samstarfi þeirra. Eins og nafn sveitarinnar gefur til kynna verður hefðbundinn „straight-ahead jazz“ í fyrirrúmi, þar sem samspil, sveifla og spuni fá að njóta sín. Kvartettinn lofar fjölbreyttum og lifandi tónleikum í anda Farmers og Halls, en um leið með sína eigin rödd að leiðarljósi.

