The Companion

•

13. - 14. nóvember

Miðaverð frá

3.900 kr.

The Companion

  

„Róbótar finna ekki til, en við finnum til með þeim ...“

- Kate Darling, The New Breed

The Companion er persónulegt stefnumót áhorfanda og vélhundar. Í sýningunni lokkar vélhundurinn hinn mennska þátttakanda út í gagnkvæm samskipti og leik. Upplifunin virkjar okkar meðfæddu forvitni og samlíðan með öllum verum sem hreyfa sig. Hverjum erum við tilbúin að hlýða? Erum við tilbúin að treysta og gefa okkur á vald félaga sem ekki er mennskur?


WAUHAUS er þverfaglegur listhópur í Helsinki sem var stofnaður árið 2016. Verk hópsins má staðsetja milli ólíkra listgreina og hafa þau verið sýnd í ýmiss konar rýmum, svo sem söfnum, svörtum kössum, borgarlandslagi, á stórum leikvöngum og aðalsviðum stofnanaleikhúsa. WAUHAUS eru þekkt fyrir samsköpun og fagurfræði þar sem hið hljóð- og sjónræna fléttast saman. Meðlimir WAUHAUS eru sviðshönnuðurinn Laura Haapakangas, leikstjórinn Juni Klein, sviðshönnuðurinn Samuli Laine, hljóðhönnuðurinn Jussi Matikainen, danshöfundurinn Jarkko Partanen, hljóðhönnuðurinn Heidi Soidinsalo, framleiðandinn Minttu-Maria Jäävuori og framkvæmdastjórinn Julia Hovi. Hópurinn vinnur með öðru listafólki og menningarstofnunum bæði í Finnlandi og erlendis.
Sýningin er flutt fyrir einn gest í einu og tekur 20 mínútur í flutningi.Aðgengi fyrir hjólastóla.
Börn á aldrinum 5-12 ára geta upplifað aðlagaða útgáfu af sýningunni í fylgd með fullorðnum aðila.
Listamenn: Jarkko Partanen, Jussi Matikainen, Laura Haapakangas from WAUHAUS 
Útlit vélhunds: Kari KankaanpääLjósahönnun: Mia JalervaÞróun hugbúnaðar: Aki Panuma (Probot)Framleiðandi: Julia HoviMeðframleiðendur: WAUHAUS (Helsinki), Black Box teater (Oslo), Kiasma Theatre (Helsinki). Í samstarfi við: Probot Styrkt af: Nordic Culture Point, Jenny and Antti Wihuri Foundation, The Arts Promotion Centre Finland, City of Helsinki.
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á https://www.reykjavikdancefestival.com/

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger