© 2026 Tix Miðasala
Leikfélag Hveragerðis
•
7. - 31. október
Miðaverð frá
4.000 kr.




Píla pína
Leikfélag Hvergerðis kynnir ævintýrasöngleikinn um hina einstöku og ævintýragjörnu litlu mús, Pílu Pínu sem á sér þann draum heitastan að fljúga. Sýningin er sett upp í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og er dásamleg leikhúsupplifun fyrir áhorfendur á öllum aldri.
Saga og ævintýri Pílu Pínu skipa stóran sess í hjörtum margra Íslendinga og hafa glatt kynslóðir barna. Hryggjarstykki sýningarinnar eru hin sígildu ljóð Kristjáns frá Djúpalæk við dásamleg lög Heiðdísar Norðfjörð og Ragnhildar Gísladóttur.
Tengingin við Hveragerði er sterk, en skáldið Kristján frá Djúpalæk bjó í Hveragerði um miðja síðustu öld og var stór hluti af hinu blómlega samfélagi skálda og listamanna sem settu svip sinn á bæinn. Í þessari nýju uppfærslu hefur öll tónlistin verið sett í nýjan og ferskan búning með nýjum útsetningum sem færa þessu sígilda verki nýjan ljóma.
Höfundur ljóða/texta: Kristján frá Djúpalæk
Tónlist: Heiðdís Norðfjörð og Ragnhildur Gísladóttir
Leikgerð: Sara Martí Guðmundsdóttir
Leikstjórn: Gunnar Gunnsteinsson
Útsetning tónlistar: Helgi Fr. Georgsson Kemp

