no lemons no melon

Tjarnarbíó

•

14. nóvember

Miðaverð frá

3.900 kr.

Í heimi þar sem nútímasamskipti eru orðin að óstöðvandi flaumi ágengra skilaboða koma þráhyggjukenndar athafnir og vöktun í veg fyrir gagnstæða upplifun á borð við lyktir, hvíld, dok, ritúal og þögn. Getum við beitt tækjum og tólum sem ætluð eru til að magna  upp hljóð til þess að endurbyggja hávaðann og nálgast þögnina?

Inga Huld Hákonardóttir og Yann Leguay vinna hér á mörkum danslistar og tónleika, og velta fyrir sér merkingu mögnunar með leik sínum að tækni sem ætlað er að auðvelda samskipti. Þannig kafa þau djúpt í hina árráttukenndu leit okkar að sífellt skilvirkari samskiptum.

no lemons no melon er þrungið löngun eftir þögn og its elusiveness. Hvernig getum við fundið þögnina sem við þörfnumst til þess að vinda ofan af okkur; þrátt fyrir hávaðann, eða kannski beinlínis fyrir tilstilli hans? Með því að gera hljóð sýnilegt og  þögnina heyranlega leitast þau Inga og Yann við að skapa kyrrð í kaótískri veröld þar sem áreitið skellur sífellt á skilningarvitunum.

Hugmynd, sköpun og flutningur Inga Huld Hákonardóttir & Yann Leguay
Ljósahönnun Lucas Van Haesbroeck 
Dramatúrgía Lina Schlager
Búningar Sofie Durnez External eye Samon Takahashi
Meðframleiðendur Kunstenwerkplaats, C-takt, HOROS Residencies STUK, Campo, Kunstenwerkplaats, Sláturhús Art Center
Yfirframleiðsla Caravan Production
Með stuðningi The Flemish Community & Reykjavíkurborg

Hluti af Iceland Moves 2026

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger