© 2026 Tix Miðasala
Ástjarnarkirkja
•
22. október
Miðaverð frá
4.900 kr.




Fögnuður - kórtónleikar með RAUST
Varla er til heiðursverðari staða en að vera fræg í Hafnarfirði. Hrafnhildur Blomsterberg hefur hæglega náð þeirri stöðu og allir Hafnfirðingar ættu að þekkja til hennar líkt og hún þekkir til þeirra allra. Síðastliðna áratugi hefur hún verið stórnafn í kórastarfi bæjarins og víða og hefur hún í gegnum starf með börnum og unglingum kynnt ótal manns fyrir fjölbreytileika og fegurð kórtónlistar. Auk þess rak hún með fjölskyldu sinni kaffihúsið Súfistann sem framreiddi kökur sem enginn gaflari gat látið hjá sér fara.
Þann 22. október næstkomandi fagnar hún sjötugu ára afmæli sínu. Það gerir hún með kórnum Raust. Meðlimir kórsins eru að stórum hluta fólk sem kynntist kórtónlist á unglingsárunum þökk sé Hrafnhildi, bæði í Kór Flensborgarskólans og Flensborgarkórnum.
Komið og njótið með okkur í Ástjarnarkirkju þann 22. október.
Til hamingju með afmælið, Hrafnhildur!

