© 2026 Tix Miðasala
Norræna húsið
•
15. nóvember
Miðaverð frá
0 kr.




Living In Color / In Living Color
Þetta sviðslistaverk sprettur af brýnni spurningu sem enn er ósvarað: Hvað þýðir það að vera „lituð“ (e. of color)?
Með því að flétta brot úr eldri verkum saman við nýjar tilraunir skapar hópurinn sameiginlegt rými þar sem draugar eru særðir fram og óvæntar víddir opnaðir. Verkið býður okkur að finna fyrir ónotunum sem fylgja kynþáttavæðingu en þokast jafnframt nær framtíð þar sem það að vera svört verður að ferli; að margræðu, sístækkandi flæði. Afnýlenduvædd og rannsakandi list sem leyfir okkur að dreyma og endurdreyma um hvað það merkir að vera svört.
Í rúman áratug hefur Sonya Lindfors unnið með hugmyndir um það að vera svört og um svarta líkama. Hún spyr áleitinna spurninga um vald og birtingarmyndir, bæði á sviðinu og utan þess, og ýtir sér ávallt lengra með ímyndunaraflinu. Living in Color / In Living Color er það fyrsta í röð verka sem bera yfirskriftina Black & Blue.
Sonya Lindfors er kamerúnsk-finnskur danshöfundur og listrænn stjórnandi sem starfar einnig við kennslu og samfélagsmál.
Sonya er stofnandi og listrænn stjórnandi UrbanApa, þverfaglegs listsamfélags sem hafnar viðteknum gildum og býður upp á vettvang fyrir nýjar aðferðir og femíníska listsköpun. UrbanApa standa m.a. fyrir vinnusmiðjum, hátíðum, ráðgjöf og útgáfustarfsemi. Verk Sonyu hverfast um spurningar um hvað það merki að vera svört, um svarta líkama, birtingarmyndir og valdakerfi, hið ókomna og afnýlenduvædda drauma. Hún starfar jöfnum höndum að eigin sköpun, kennslu og listrænni stjórnun UrbanApa. Markmið hennar er ávallt að búa til and-rasískan og femínískan vettvang þar sem hátíð, sýning, rit eða vinnusmiðja getur fætt af sér valdeflingu og sameiginlega, róttæka drauma.
Maele Cheza Sabuni er fjölhæfur dansari, danshöfundur, sviðslistamaður og plötusnúður sem býr í Stokkhólmi. Síðustu 15 árin hefur hann sýnt víðsvegar um heim, m.a. hjá Cullberg, í Riksteatern, við afhendingu Friðarverðlauna Nóbels og í útsendingu SVT á þjóðhátíðardegi Svía. Hann hefur unnið til verðlauna sem götudansari og skapaði hið rómaða verk Bach In the Street. Í verkum sínum brúar hann bilið á milli ólíkra menningar-, list- og tónlistarheima. Undir nafninu DJ Cheza hefur hann haslað sér völl í sænsku plötusnúðasenunni og komið fram á viðburðum á borð við Way Out West og Polar Music Prize.
Benson A’Kuyie er söngvari, dansari og sviðslistamaður. Listsköpun hans á sér djúpar rætur í Krump-dansi sem mótar rannsóknir hans á afrófútúrisma, hinseginleika, göldrum og hinu andlega. Hann hefur unnið með kvikmyndamiðilinn, innsetningar og sviðslistir. Meðal annars hefur stuttmynd hans Shaman (2020) verið sýnd víða um heim, t.d. á MARKK Museum í Hamborg. Árið 2023 var sólóverkið SanctuarYIE frumsýnt á A Wa Nibi Festival en þar býður hann áhorfendum að upplifa eins konar leiðslu. Hann var meðhöfundur og dansari í verki Naomi Kelechi Odhiambo, Dinge, die wir nicht sagen. Nýlega dvaldi hann í Malmö sem gestalistamaður og vann að sínu nýjasta verki, [GN-z33/6°].
Leikstjórn, kóreógrafía & hugmynd: Sonya Lindfors
Flytjendur: Benson A’kuyie and Maele Sabuni
Hljóðhönnun: Jussi Matikainen
Framleiðendur: UTT ry and Sonya Lindfors
Meðframleiðendur: The Finnish Museum of Photography
Ljósmyndari: Tuukka Ervasti /(From work Living in Color / In Living Color from series Black & Blue by Sonya Lindfors)
Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á

