Listasafn Reykjavíkur

•

11. nóvember

Miðaverð frá

3.900 kr.

Black 

  

Verkið „Black“ er hugleiðing um ofbeldi og valdeflingu í tengslum við það að vera svartur á okkar tímum. Sú hugleiðing er mótuð af líkama sem ögrar og truflar, er í senn særður og upphafinn. Danshöfundurinn og dansarinn Oulouy notast hér við látlausa sviðsmynd sem er þó þrungin táknsæi. Hann skírskotar til nýlegra atburða á borð við #BlackLivesMatter-hreyfinguna og morðið á George Floyd þegar hann endurhugsar hinn svart-afríska líkama í vestrænum heimi.

„Black“ er dans en einnig sjón- og hljóðræn frásögn sem komið er til skila í gegnum götudanshefðir Afríku og bandaríska arfleifð hennar, svo sem Coupé-Décalé, Ndomboló, Afrohouse og Krump.

Oulouy fæddist á Fílabeinsströndinni en er búsettur á Spáni. Hann er danshöfundur, dansari og listrænn stjórnandi sem kennir víða um heim. Fyrsta verk hans, „Black“, er hugleiðing um ofbeldi og valdeflingu í tengslum við hinn svarta líkama á okkar tímum. Verkið „Afrikan Party“ (2022) er framtíðarkenndur óður til Afríku þar sem alþjóðlegi hópurinn Supa Rich Kids kemur fram með Oulouy. Nýjasta verk hans er „Kong“ (2024). Sviðsverk hans hafa verið sýnd víða um heim, m.a. í Perelman Performing Arts Center í New York, Bluma Appel í Toronto, Fabrik Potsdam, Dansens Hus Oslo, Mercat de les Flors, Teatro Principal de Palma, Journées Théâtrales de Carthage, Suzanne Dellal Centre og Dampfzentrale. „Black“ var valið til sýningaferðalags á Spáni á vegum Danza a Escena 2024 og var Oulouy einn fyrsti danshöfundurinn sem valinn var í slíkt verkefni. Fyrir „Afrikan Party“ hreppti hann Catalan Performing Arts Critics-verðlaunin fyrir bestu danshreyfingar 2023, en verkið er að finna í dansgagnasafni New York Public Library. Oulouy er einnig stofnandi og listrænn stjórnandi hátíðarinnar Oyofe sem helguð er götudansi. Oulouy var valinn inn á Aerowaves 25 með verkið „Black“.


Kóreografía & flytjandi: Oulouy

Framleiðsla og dreifing: Africa Moment

Með stuðningi frá sendiráði Spánar á Íslandi

Í verkinu birtist ofbeldi (lögregluofbeldi, þrælahald, landrán o.fl.)

Sýningin er partur af dagskrá Reykjavík Dance Festival. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á

https://www.reykjavikdancefestival.com/

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger