© 2026 Tix Miðasala
Bæjarleikhúsið í Mosfellsbæ
•
5 sýningar
Miðaverð frá
4.500 kr.




Vorið vaknar
Vorið Vaknar (e. Spring Awakening) er rokksöngleikur eftir Steven Sater byggður á þýsku samnefndu leikriti eftir Frank Wedekind frá árinu 1891 með tónlist eftir Duncan Sheik.
Söngleikurinn var frumsýndur árið 2006 á Broadway og hlaut 8 Tony verðlaun, meðal annars verðlaun fyrir besta söngleik ársins.
Söngleikurinn fjallar um ungt fólk í uppreisn gegn íhaldssömu samfélagi í uppgötvun sinni á nýjum heimi tilfinninga og frelsis utan skólastofnunnar, með fögrum og hrikalegum afleiðingum. Þessi hópur ungs fólks, sem hefur aðeins hvert annað til leiðsagnar, fetar þann snúna og grýtta veg sem fylgir unglingsárunum og uppgötvar í leiðinni eigin líkama, huga og sjálfsmynd. Vorið Vaknar er kraftmikil og lífleg hylling æskunnar og uppreisnar; verkið fléttar saman siðferði, kynlíf og rokk í sögu sem snertir hjartarætur.
Kveikjuvarnir:
Í sýningunni er vísað til kynferðisofbeldis, dauða, sorgar og missis. Kynlíf, ofbeldi og sjálfsvíg sviðsett. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Leikfélag Mosfellssveitar á Instagram eða Facebook @leikmos.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Höfundur: Steven Sater
Byggt á samnefndu verki eftir Frank Wedekind
Höfundur tónlistar: Duncan Sheik
Þýðing: Orri Huginn Ágústsson
Leikstjórn: Aron Martin og Elísabet Skagfjörð
Framleiðsla: Ása Valdimarsdóttir
Aðstoðarmaður leikstjóra: Arna Mist
Tónlistarstjórn: Þórhildur Hólmgeirsdóttir
Söngstjórn og raddútsetningar: Eik Haraldsdóttir
Danshöfundur: Cristina Agueda
Leikmynd og búningar: Brynja Sigurðardóttir
Lýsing: Ýmir Ólafsson
Leikgervi: Svanhildur Sverrisdóttir
Leikmunir: Alex Gló Svarthöfði Sigurðar
Leikarar:
Kristján Nói Kristjánsson
Emil Grettir Ólafsson
Elísabet Tinna Haraldsdóttir
Embla Sif Ólafsdóttir
Hildur Kaldalóns Björnsdóttir
Styrmir Sturla Dýrfjörð
Brynjólfur Skúlason
Hugrún Ylfa Ágústsdóttir
Katrín Ýr Erlingsdóttir
Örn Smári Jónsson
Andri Dan Hlynsson
Dóra Wild
Valgeir Skagfjörð
Hljómsveit:
Þórhildur Hólmgeirsdóttir, Jón Glúmur Hólmgeirsson, Jóhann Þór Bergþórsson, Hafsteinn Davíðsson, Katrín Róbertsdóttir, Arndís Snorradóttir og Rut Sigurðardóttir.

