© 2026 Tix Miðasala
Hagaskóli
•
7. október
Miðaverð frá
4.990 kr.




Bjarni Frímann og Magnús Jóhann Ragnarsson hafa verið vinir í meira en áratug. Þeir kynntust þegar Magnús var rétt skriðinn úr skóla og hafa síðan viðhaldið sterkum félagstengslum með nokkuð stöðugum hætti.
Fyrstu tónleikar þeirra tveggja saman verða auðvitað í hátíðarsal Hagaskóla, gamla skólanum hans Bjarna, þar sem ýmsar minningar — og gamall flygill — bíða enn.
Þeir hafa óljósa hugmynd um hvað annað þurfi. Hljóðgervla? Já, mögulega. Ondes Martenot? Svuntuþeysara, harmonikku, congatrommur, fiðlu? Verður metið með hliðsjón af aðstæðum, stuðningsþörfum og þroska. Heimilt verður að veita tímabundnar og rökstuddar undanþágur.
Efnisskráin hefur ekki verið lögð fram í Samráðsgátt. Hæfniviðmið liggja ekki fyrir. Hljóðfæravali er ólokið, engin sérstök aðgerðaáætlun hefur verið samþykkt og ekki hefur tekist að ná víðtækri sátt meðal helstu hagsmunaaðila.
Það sem liggur fyrir er góð vinátta, gamall flygill og sameiginlegur ódrepandi áhugi á tónlist þar sem djass og klassík, raftónlist, tónsmíðar og spuni virðast enn sem fyrr neita að halda sig hvert á sinni deild. Gert verður ráð fyrir einstaklingsmiðuðum nálgunum, fjölbreyttum námsaðstæðum og ákveðnum sveigjanleika við framkvæmd.
Ekki er ljóst hvort tónleikarnir sýni grunnhæfni, afburðahæfni eða hvorugt. Þrautseigja verður þó höfð að leiðarljósi.
Sem tveir af fjórum aðstandendum State of the Art hafa Bjarni og Magnús nokkra reynslu af samráði, stefnumótun og eftirfylgni — og því að láta eins og hlutirnir séu undir stjórn.
Nú ætla þeir að mæta í skólann og kanna hvort eitthvað af þessu hafi verið óþarfi.
Áhrif innleiðingarinnar verða metin sem hluti af innra mati að tónleikum loknum. Réttmætt tillit verður tekið til sjónarmiða áheyrenda í samræmi við aldur og þroska.
Aftur á skólabekk. Engin námskrá. Námsmat fer fram á skalanum 1–10.

