Camerarctica - Mozart og Brahms kvintettar - Sígildir sunnudagar

Harpa

22. nóvember

Miðaverð frá

2.500 kr.

Á tónleikunum kallast á tvö stórbrotin kammerverk: Strengjakvintettinn í g-moll eftir Mozart og Klarinettukvintettinn í h-moll eftir Brahms.

Hljóðfæraleikarar Camerarctica:
Ármann Helgason klarinettuleikari
Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari
Bryndísi Pálsdóttir fiðluleikari
Svava Bernharðsdóttir víóluleikari
Guðrún Þórarinsdóttir víóluleikari
Sigurður Halldórsson sellóleikari

Efnisskrá:
Wolfgang Amadeus Mozart - Allegro í B-Dúr kv. 516c fyrir klarinettu og strengjakvartett.
W.A Mozart - Strengjakvintett í g-moll kv. 516
-Hlé-
Johannes Brahms - Kvintett fyrir klarinettu og stengi í h-moll op. 115

Strengjakvintettinn nr. 4 í g-moll, KV 516 eftir Mozart er eitt af hans dýpstu og þekktustu kammertónverkum, samið vorið 1787. Verkið einkennist af miklum tilfinningaþunga, trega og angurværð, sem oft er tengt við g-moll tóntegundina hjá Mozart (eins og í 40. sinfóníunni). Ólíkt hefðbundnum strengjakvartett bætir Mozart við annarri lágfiðlu (violu), sem gefur verkinu dökka, ríka og þétta áferð í miðjuraddasviðinu.

Brahms heillaðist gjörsamlega af ríkulegum og tjáningarríkum tóni klarinettunnar. Innblásinn af leik klarinettuleikarans Richards Muhlfelds hóf Brahms að semja kammerverkin fyrir klarinettu og færði heiminum nokkur af sínum dýpstu og fallegustu síðbúnu verkum, þar á meðal Klarinettukvintettinn í h-moll op.115 sem saminn var sumarið 1891. Verkið er málað haustlitum, ljóðrænu og dramatík og tekur á sig yfirbragð sígaunatónlistar í hæga þættinum en kvintettinn þykir vera eitt af meistaraverkum kammerbókmenntanna.

Í upphafi tónleikanna heyrist bjartur Allegro-þáttur fyrir klarinettu og strengi eftir Mozart sem ber sama KV númer og Strengjakvintettinn.

Tónlistarhópurinn Camerarctica hefur starfað frá árinu 1993, um það leyti sem hljóðfæraleikararnir komu heim frá námi við tónlistarháskóla erlendis. Félagar hópsins hafa meðal annars leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, kennt hljóðfæraleik við tónlistarskólana á höfuðborgarsvæðinu og komið víða fram sem einleikarar. Camerarctica hefur vakið sérstaka athygli og hlotið lofsamlega dóma fyrir flutning sinn á verkum Mozart á árlegum kertaljósatónleikum í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu og á strengjakvartettum Shostakovitch og Bartók á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins.

Áætluð lengd tónleika: ein og half klukkustund, með hléi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger