© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
31. janúar
Miðaverð frá
2.500 kr.




Hjónin Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari fagna með tónleikum í Norðurljósum aldarfjórðungi sem dúó. Gestalistamenn á tónleikunum eru Pétur Jónasson gítarleikari, Eyjólfur Eyjólfsson söngvari, flautu- og langspilsleikari og börn Guðrúnar og Javiers, þau Eva Jáuregui og Leó Guðrúnarson Jáuregui.
Tónlistarmennirnir flytja lög og ljóð sem eru Guðrúnu og Javier sérstaklega kær og þau hafa flutt á tónleikum víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku. Þar má heyra útsetningar Javiers á þjóðlögum og sönglögum frá Íslandi, Írlandi, Bandaríkjunum, Spáni miðalda og Suður-Ameríku. Þau flytja einnig lög eftir sig sjálf, Hauk Tómasson og Huga Guðmundsson sem voru sérstaklega samin fyrr rödd og klassískan gítar. Tónleikunum lýkur með verkinu The Religion of Love (El amor es mi fé) sem Francisco Javier Jáuregui samdi í minningu tónskáldsins Sir John Tavener við ljóð á arabísku eftir Ibn Arabi. Inntak ljóðsins er í anda þess sem hefur veitt Guðrúnu og Javier innblástur frá upphafi, en það er að finna hið sammannlega í tónlist og ljóðlist, það sem tengir okkur öll, sama hvaðan við komum, á hvaða tíma við lifum, hvaða trú við játum eða játum ekki, í hvers konar menningu við hrærumst og hvaða tungumál við tölum. Mannshjartað er það sama alls staðar.
Efnisskrá
Úts. Francisco Javier Jáuregui (f. 1974)
Down by the Salley Gardens (William Butler Yeats)
John Jacob Niles (1892-1980) / F. J. Jáuregui
Black is the Color
Wayfaring Stranger
I Wonder as I Wander
Atli Heimir Sveinsson (1938-2019)
Söknuður* (Jónas Hallgrímsson)
Afmælisdiktur* (Þórbergur Þórðarson)
F. J. Jáuregui og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir (f. 1977)
Síðasti strætó fer korter í eitt (Kristján Þórður Hrafnsson)
Haukur Tómasson (f. 1960)
Hún er vorið (Matthías Johannessen)
Hugi Guðmundsson (f. 1977)
Hvíld (Snorri Hjartarson)
Francisco Javier Jáuregui
Úr Sefardískum lögum:
-Nani, nani (þjóðvísa)
-Yo m‘enamorí d‘un aire (þjóðvísa)
Francisco Javier Jáuregui
Blessuð sólin elskar allt (Hannes Hafstein)
Violeta Parra (1917-1967)
Þökk sé þessu lífi* (Violeta Parra, ísl. þýð. Þórarinn Eldjárn)
Francisco Javier Jáuregui
The Religion of Love – In Memoriam Sir John Tavener (Ibn Arabi)
*Útsetningar: Francisco Javier Jáuregui
Flytjendur
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran
Francisco Javier Jáuregui gítar
Sérstakir gestir: Eyjólfur Eyjólfsson, Pétur Jónasson, Eva Jáuregui, Leó Guðrúnarson Jáuregui
Áætluð lengd tónleika: ein klukkustund, án hlés
Um listamennina:
MezzósópransöngkonanGuðrún Jóhanna Ólafsdóttir og spænski gítarleikarinn og tónskáldiðFrancisco Javier Jáuregui eru þekkt fyrir að skapa mikla nánd við áhorfendur, innlifun, frumlegt efnisval, heillandi framkomu, tilfinninganæma túlkun og áhugaverðar kynningar, sem færa hlustendur inn í heim hvers lags fyrir sig. Guðrún og Javier komu fyrst fram saman árið 2002 í Guildhall School of Music and Drama í London, þaðan sem þau luku bæði mastersgráðum í tónlist. Síðan þá hafa þau komið reglulega fram í fjölmörgum tónleikasölum og á tónlistarhátíðum víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum og Afríku. Þau flytja oft útsetningar eftir Francisco Javier sjálfan á ýmsum þjóðlögum, en þau hafa einnig frumflutt nýja tónlist eftir íslensk og erlend tónskáld. Guðrún og Javier hafa tekið upp fyrir útvarp og sjónvarp á Íslandi og erlendis og ýmsar plötur saman, s.s. Atli Heimir Sveinsson – sönglög fyrir rödd og gítar, Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög, Dýrin á Fróni, English and Scottish Romantic Songs for voice and guitar, Secretos Quiero Descubrir og Með þér – David del Puerto Vocal Works. Upptökur þeirra má einnig heyra á diskunum Inspired by Harpa, Icelandic Folksongs and Other Favorites, Kom skapari og Awake.www.duoatlantico.com
Æviágrip
GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR mezzósópran hefur komið fram sem einsöngvari á tónleikum vítt og breitt um Evrópu, í Bandaríkjunum, Afríku og Suður-Ameríku í tónleikasölum svo sem Henry le Boeuf Hall í Bozar í Brussel, Auditorio Nacional de Música de Madrid, Teatro Real í Madrid, Glinka sal Fílharmóníunnar í St. Pétursborg, Coliseo í Buenos Aires og Wigmore Hall og Royal Festival Hall í London. Hún hefur sungið m. a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Bachsveitinni í Skálholti, Kammersveitinni Ísafold, Caput, Nordic Affect, Sonor Ensemble, Sinfóníuhljómsveit Madrídar, St Petersburg State Symphony Orchestra og Philharmonia Orchestra í London og Sinfóníuhljómsveit Barselóna og Katalóníu. Guðrún hefur frumflutt fjölmörg tónverk eftir íslensk og erlend tónskáld, sem sum hver hafa verið samin sérstaklega fyrir hana. Hún hefur sungið í óperum á Spáni, Bretlandi, Írlandi og Íslandi, hlutverk eins og Öskubusku, Dorabellu, Rosinu, Romeo, Prins Orlowsky, Carmen, Sesto, Tónskáldið og titilhlutverkið í Stígvélaða kettinum eftir Montsalvatge í Teatro Real í Madríd. Guðrún stundaði söngnám hjá Rut Magnússon í Tónlistarskólanum í Reykjavík og hjá Lauru Sarti í Guildhall School of Music and Drama í London, en þar hlaut hún meistaragráðu í söng og lauk óperudeild skólans. Hún hefur einnig sótt einkatíma í söng hjá Aliciu Nafé í Madríd. Hún hefur hlotið ýmis verðlaun í alþjóðlegum söngkeppnum, svo sem Kathleen Ferrier ljóðasöngsverðlaunin í Wigmore Hall í London, ljóðasöngsverðlaunin í alþjóðlegu söngkeppninni í Zamora, þriðju verðlaun í Concorso di Musica Sacra í Róm og Joaquín Rodrigo verðlaunin í Madríd. Hún hefur margsinnis hlotið starfslaun listamanna.
Með Francisco Javier Jáuregui gítarleikara hefur Guðrún sungið inn á geisladiskana: Atli Heimir Sveinsson – sönglög með gítar, Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög, Dýrin á Fróni, English and Scottish Romantic Songs for voice and guitar, Secretos Quiero Descubrir og Með þér – David del Puerto Vocal Works. Upptökur hennar má einnig heyra á diskunum Inspired by Harpa, Icelandic Folksongs and Other Favorites, Kom skapari, Awake, Grieg-Schumann með Víkingi Heiðari Ólafssyni (The Dramatic Choice, Gramophone Magazine), Apocrypha (Íslensku tónlistarverðlaunin), Iepo Oneipo Heilagur Draumur (Editor´s Choice, Gramophone Magazine), Grannmetislög, Unto Us, Sigvaldi Kaldalóns: Ég lít í anda liðna tíð, Hjálmar H. Ragnarsson Tengsl, Áskell Másson og Óperan Ragnheiður. Guðrún og Francisco Javier Jáuregui eru stjórnendur árlegu tónlistarhátíðarinnar Sönghátíðar í Hafnarborg, sem þau stofnuðu árið 2017 og hlotið hefur Íslensku tónlistarverðlaunin í flokki tónlistarhátíða. Guðrún er skólastjóri Söngskólans í Reykjavík. www.gudrunolafsdottir.com
Spænski gítarleikarinn og tónskáldið FRANCISCO JAVIER JÁUREGUI útskrifaðist með meistaragráðu frá Guildhall School of Music and Drama í London. Gítarkennarar hans þar voru Robert Brightmore og David Miller, en hann lærði einnig spuna hjá David Dolan og á tíorbu hjá David Miller. Áður stundaði hann nám í Los Angeles og Madríd. Javier hefur komið fram á tónleikum, bæði sem einleikari og flytjandi kammertónlistar, á Spáni, Ítalíu, Möltu, Íslandi, í Englandi, Skotlandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og Suð-Austur Asíu í tónleikasölum svo sem St Martin in the Fields, Konungshöllinni í El Pardo á Spáni, St. James’ Palace og The Linbury Studio Theatre Covent Garden í London og Auditorio Nacional í Madríd. Hann hefur flutt gítarkonserta eftir Vivaldi og Rodrigo (Concierto de Aranjuez) með sinfóníuhljómsveitinni Schola Camerata á Spáni og komið fram sem einleikari með Sonor Ensemble, en þá hljómsveit skipa hljóðfæraleikarar úr Þjóðarsinfóníuhljómsveit Spánar. Javier kemur reglulega fram með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur mezzósópran og Elenu Jáuregui fiðluleikara, en þau Elena mynda Roncesvalles dúóið. Javier hefur leikið inn á geisladiskana Atli Heimir Sveinsson – sönglög með gítar, Mitt er þitt – íslensk og spænsk sönglög, Dýrin á Fróni, English and Scottish Romantic Songs for voice and guitar, Secretos Quiero Descubrir, Jardín bajo la luna og Með þér – David del Puerto Vocal Works. Upptökur hans má einnig heyra á diskunum Inspired by Harpa, Icelandic Folksongs and Other Favorites, Kom skapari og Awake. Hann er stofnandi og meðstjórnandi árlegu tónlistarhátíðarinnar Sönghátíð í Hafnarborg með Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur. Hann kennir klassískan gítarleik við Tónskólann í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins. www.javierjauregui.com
Myndbönd:
https://www.youtube.com/watch?v=ptRaGyCAdlM&index=2&list=PLfpBf_18yTnQvVAUgKIpgDlAGA0YmQ8I0
Vefsíða: www.duoatlantico.com
Guðrún og Javier á Spotify

