Kurtág - Bartók - Bach : Sígildir sunnudagar

Harpa

15. nóvember

Miðaverð frá

3.000 kr.

Sif Margrét Tulinius fiðluleikari og píanóleikarinn Peter Máté flytja verk eftir György Kurtág, Béla Bartók og Johann Sebastian Bach í spennandi efnisskrá einleiksverka og samleiksverka.

Tónlist ungversku tónskáldanna Bartóks og Kurtágs sprettur úr ríkri miðevrópskri tónlistarhefð þar sem þjóðlagaarfur og nákvæmni í tónmáli koma saman en jafnframt var tónlist Bachs þeim báðum afar mikilvægur innblástur. Efnisskráin býður þannig upp á samtal milli einleiks og samleiks, hefðar, þjóðlagaarfs og nýsköpunar.

Efnisskrá

György Kurtág (1926- )
Signs, Games and Messages - frumflutningur á Íslandi
Jele, játékok és üzenetek
fyrir einleiksfiðlu
° Hommage à J.S.B.
° Postcard to Anna Keller
  Anziksz Kellerannának
° Doloroso
   Garzulyéknak
° Perpetuum mobile
Vadas Agnesek
° Népdalféle
° The Carenza Jig
° ... féerie d'automne ...
° In Nomine - all'ongherese
   Damjanich emlékkö

  Béla Bartók (1881-1945)
Sex rúmanskir dansar fyrir fiðlu og píanó

HLÉ

  

J.S. Bach (1685-1750)
Sónata í g-moll fyrir einileiksfiðlu
Adagio
Fuga
Siciliano
Presto

Béla Bartók (1881-1945)
Rapsódía nr. 1 fyrir fiðlu og píanó
Prima parte: Lassú
Seconda parte: Friss

Sif Margrét Tulinius fiðluleikari hefur verið atkvæðamikil í íslensku tónlistarlífi um árabil. Að einleikaraprófi loknu vorið 1991 hlaut hún Fulbright styrk til frekara náms í Bandaríkunum þaðan sem hún lauk meistaranámi sínu frá New York í samstarfsverkefni milli Juilliard tónlistarháskólans og Stony Brook háskólans. Hún fluttist þá til Evópu og lék þar ásamt ýmsum tónlistarhópum á fjölmörgum tónlistarhátíðum víðs vegar um heiminn. Haustið 2000 var Sif Margrét ráðin til starfa í stöðu 2. konsertmeistara við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún gegndi því starfi allt til ársins 2016 er hún fluttist til Berlínar þar sem hún bjó um nokkurra ára skeið og lék ásamt fjölmörgum virtum tónlistarhópum m.a. Berliner Philharmoniker. Sif hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands m.a. í flutningi á fiðlukonsert Gubaidulina, Fylgjum Þorkels Sigurbjörnssonar og Partitu eftir Lutoslawski. Sif hefur bæði sjálfstætt og ásamt öðrum tekið virkan þátt í flutningi nútímatónlistar og kom einleiksdiskur hennar De Lumine út í nóvember 2024 með hljóðritunum af þremur nýjum íslenskum einleiksverkum fyrir fiðlu.  Flutningur Sifjar Margrétar á De Lumine hefur hloitð lof gagnrýnenda bæði íslenskra og erlendra tónlistartímarita og var De Lumine valinn geisladiskur ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í mars 2025. Hún kemur reglulega fram á kammertónleikum og voru tónleikar hennar og Richard Simm píánóleikara í júní síðastliðnun með verkum eftir Beethoven og Franck valdir tónleikar ársins 2025 af Morgunblaðinu. Geisladiskur þeirra Beethoven og Franck kom út í nóvember 2025 og hefur hlotið lof gagnrýnenda bæði hérlendis og erlendis. Samhliða tónleikahaldi starfar Sif við fiðlukennslu og kammer-músík leiðsögn við Tónlistarskóla Kópavogs, Menntaskóla í Tónlist og við Listaháskóla Íslands.       https://sifmargrettulinius.com

Peter Máté píanóleikari var fæddur í Tékkóslóvakíu en hann hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Peter lauk einleikara- og kennaramastersgráðu úr Tónlistarakademíunnni í Prag. Á námsárunum vann hann til margra verðlauna í heimalandi sínu og síðar í alþjóðlegum keppnum, svo sem í Vercelli og Enna á Ítalíu á árunum 1986 og 1989.

Peter hefur haldið einleikstónleika og tekið þátt í kammertónleikum (Tríó Reykjavíkur, Kammertríó Kópavogs, o.fl.) víða á Íslandi og farið í tónleikaferðir til Frakklands, Bretlands og Bandaríkjanna auk Austur-Evrópulanda.
Peter er prófessor Listaháskóla Íslands en kennir einnig píanó við Menntaskóla í tónlist. Hann hefur frumflutt mörg íslensk píanó- og kammerverk og hefur haldið fyrirlestra um íslenska píanótónlist erlendis. Heildarupptaka Peters á píanóverkum eftir John Speight var valin hljómplata ársins á Íslensku tónlistarverðlaunum 2021.

Peter hefur verið gestakennari margra erlenda tónlistarháskóla. (Budapest, Bolzano,  Brussels, Chicago, Graz, Helsinki, Lyon, Modena, Oslo, Poznan, Riga, Stokkhólmur, Tallinn, o.fl.)

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger