Einleikstónleikar

Hannesarholt

30. janúar

Miðaverð frá

3.900 kr.

  Einleikstónleikar  

  

Herdís Ágústa Linnet flytur nokkur af sínum uppáhalds verkum sem skrifuð hafa verið fyrir klassíska píanóið.

Verkin endurspegla allt litróf hljóðfærisins, kraftinn og fegurðina í tónlist eftir J. S. Bach og J. Brahms - og sjálfa náttúruna í meistaraverki M. Ravels,

Miroirs

.

Þetta eru jafnframt fyrstu formlegu einleikstónleikar Herdísar eftir heimkomu, en á áunum 2019-2025 nam hún við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi og tónlistarháskólann í Malmö.

Á námsárunum hlaut hún styrk úr hinum virta minningarsjóði um Birgi Einarsson apótekara og frá Nordiska Jubelfonden þar sem hún er sögð vera píanóleikari sem leikur af mikilli einlægni og með afar fögrum og hlýjum tóni.

 

Mynd📷: Magnus Andersen

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger