© 2026 Tix Miðasala
Hótel Geysir
•
6. - 13. desember
Sala hefst
13. september 2026, 12:00
(eftir 1 dag)




Fjölskyldu-jólahlaðborð á Geysi
Við erum einstaklega glöð að geta boðið fjölskyldum aftur upp á hin sívinsælu fjölskyldu-jólahlaðborð á Geysi.
Í ár verða jólahlaðborðin haldin 6. desember og 13. desember – tveir notalegir og hátíðlegir dagar þar sem við sameinum jólagleði, góðan mat og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Jólaskemmtunin hefst í skóginum kl. 15:00
Þar taka fjörugir jólasveinar á móti börnum og foreldrum og koma öllum í sannkallað jólaskap. Við yljum okkur saman yfir ilmandi heitu súkkulaði og tröllapönnukökum og njótum notalegrar stundar í skóginum.
Að sjálfsögðu gefst einnig tækifæri til að velja sér jólatré í skóginum og taka með heim. Athugið að keyra þarf frá skógarhúsinu að jólatréssölunni og jólatréssalan þessa daga er eingöngu ætluð gestum jólahlaðborðsins.
Jólahlaðborðið hefst kl. 17:00 á Geysir veitingahúsi
Þá tekur við hátíðleg jólastund með fallegri jólatónlist, notalegu andrúmslofti og gómsætum jólamat.
Við hugsum sérstaklega um yngstu gestina okkar og bjóðum börnunum upp á sérstakt barnahlaðborð í þeirra hæð, svo þau geti sjálf valið sér uppáhaldskræsingarnar á auðveldan og skemmtilegan hátt.
Eftir matinn sameinast fjölskyldan öll á dansgólfinu þar sem DJ Dóra Júlía og jólasveinarnir sjá um að koma öllum í sannkallað jólaskap. Við dönsum, syngjum og njótum stundarinnar saman – og jólasveinarnir mæta með glaðning fyrir öll börnin.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Geysi og skapa saman dýrmætar jólaminningar!

