© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
21. október
Miðaverð frá
3.900 kr.




Julius Windisch og Freysteinn Gíslason
Píanóleikarinn og tónskáldið Julius Windisch er einn af áhugaverðustu röddum evrópskrar djasssenunnar. Tónlist hans einkennist af leit að nýjum hljóðheimum, fíngerðum blæbrigðum og persónulegri tjáningu þar sem spuninn og samspilið eru í forgrunni. Verk hans sameina næmni, hugmyndaauðgi og sterka listræna sýn.
Á þessum tónleikum leiða Julius Windisch og Freysteinn Gíslason saman krafta sína og flytja bæði frumsamda tónlist eftir Julius og Freystein. Tónlist þeirra á rætur í djassi, spunatónlist og samtímatónlist, þar sem rík áhersla er lögð á samspil, litríkan hljóðheim og opið samtal tónlistarmannanna.
Með þeim á sviði verða tveir af fremstu djassleikurum Íslands, Haukur Grøndal á saxófóna og Einar Scheving á trommur. Með reynslu sinni, sköpunargleði og næmu samspili mynda þeir öflugan kvartett sem gefur tónlistinni aukið rými og kraft.
Áhorfendum býðst einstakt tækifæri til að heyra nýja tónlist eftir tvo skapandi tónlistarmenn sem hafa markað sér sérstöðu á evrópskri djasssenu, flutta af kvartett sem leggur áherslu á lifandi samskipti, spunann og sameiginlega sköpun í augnablikinu.

