Sígildir sunnudagar: Sönglög eftir Gylfa Þ. Gíslason

Harpa

17. janúar

Miðaverð frá

4.900 kr.

Útgáfutónleikar
Þjóðvísa: Sönglög eftir Gylfa Þ. Gíslason

Andri Björn Róbertsson bassabarítón, Dísella Lárusdóttir sópran, Elmar Gilbertsson tenór, Hildigunnur Einarsdóttir messósópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó flytja úrval laga af tveim nýjum diskum sem geyma nær öll sönglög Gylfa, 20 lög sem margir þekkja, sum þjóðkunn, og 11 önnur lög sem hafa ekki heyrzt áður. Diskarnir verða á boðstólum. Tónleikarnir verða fagurlega myndskreyttir. Þorvaldur Gylfason flytur stuttar skýringar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger