© 2026 Tix Miðasala
Hallgrímskirkja
•
25. október
Sala hefst
2. október 2026, 10:00
(eftir 3 vikur)




Kór Hallgrímskirkju býður til tónleika í tilefni af útkomu fyrstu breiðskífu kórsins með nýrri íslenskri kirkjutónlist, In caelo et in terra. Diskurinn er gefinn út af Hallgrímskirkju á 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar og 5 ára afmæli Kórs Hallgrímskirkju.
Kór Hallgrímskirkju hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á nýsköpun og voru öll verkin á plötunni pöntuð og frumflutt af kórnum. Þau eru samin við kirkjulega texta á latínu, texta sem eiga sér langa sögu og hafa verið túlkaðir á ótal vegu í tónum. Hér fá tónskáld samtímans tækifæri til að nálgast þessa texta frá nýju sjónarhorni og skapa eigin hljóðheim í kringum orð sem hafa fylgt kirkjunni um aldir.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Diskurinn verður til sölu í forkirkjunni fyrir og eftir tónleikana og jafnframt verður tekið á móti frjálsum framlögum í kórsjóð.
Flytjendur:
Kór Hallgrímskirkju
Steinar Logi Helgason, stjórnandi
Björn Steinar Sólbergsson, orgel
Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran
Sólbjörg Björnsdóttir, sópran
Efnisskrá:
Hosanna filio David – Finnur Karlsson
Ave Maria – Hugi Guðmundsson
Psalmus 116 – Hildigunnur Rúnarsdóttir
Veni Sancte spiritus – Bára Grímsdóttir
Tu solus qui facis mirabilia – Þorvaldur Örn Davíðsson
Pater noster – Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Ave verum Corpus – Hjálmar H. Ragnarsson
Ave maris stella – Elín Gunnlaugsdóttir
Magnificat – Tryggvi M. Baldvinsson
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR

