© 2026 Tix Miðasala
Sviðið, Selfossi
•
17. september
Miðaverð frá
3.990 kr.




SKVÍSUKVÖLD - góðgerðarkvöld fyrir konur
Vertu með okkur í ógleymanlegu Skvísukvöldi á Sviðinu á Selfossi fimmtudaginn 17. september 2026!
Frábær söngkona stígur á svið og yfir kvöldið verða fjölbreytt skemmtiatriði, skemmtilegir pop-up sölubásar og happdrætti með glæsilegum vinningum.
Einn happdrættismiði fylgir hverjum aðgöngumiða og hægt verður að kaupa fleiri happdrættismiða á staðnum yfir kvöldið. Með því eykur þú vinningslíkurnar og styrkir um leið frábært málefni!
Við komu fá gestir óáfengan drykk í boði Ölgerðarinnar og freyðivínsglas í boði Mekka einnig verður bar verður á staðnum þar sem hægt verður að kaupa drykki.
Húsið opnar kl. 19:30 og dagskráin hefst stundvíslega kl. 20:00. Mikilvægt er að mæta tímanlega svo enginn missi af upphafi kvöldsins!
Um Sigurhæðir
Sigurhæðir eru úrræði fyrir konur sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi á Suðurlandi. Þar fá konur stuðning, ráðgjöf og öruggt rými til að vinna úr reynslu sinni og styrkja sig til framtíðar.
Með Skvísukvöldinu viljum við leggja okkar af mörkum og styðja við mikilvægt starf Sigurhæða. Allur ágóði kvöldsins rennur til þeirra.
Frábær söngkona og skemmtiatriði
Happdrætti með glæsilegum vinningum
Einn happdrættismiði fylgir hverjum aðgöngumiða
Skemmtilegir pop-up sölubásar
Óáfengur móttökudrykkur í boði Ölgerðarinnar og freyðivín í boði Mekka
Bar á staðnum
Allur ágóði rennur til Sigurhæða
Forsala: 3.990 kr.
Við inngang: 4.990 kr.
Takmarkaður fjöldi miða er í boði - tryggðu þér miða tímanlega!
Komdu, vertu með og styðjum gott málefni saman

