Gunnar Hilmarsson Tríó leikur á Snorrabar

11. september

Miðaverð frá

3.990 kr.

Gunnar Hilmarsson Tríó leikur á Snorrabar

  Tríóið leikur jazz tónlist sem sækir innblástur í tónlist gítarleikarans Django Reinhardt. Þegar kemur að leik í stíl Reinhardts eru fáir hér á landi sem standast Gunnari snúning og þótt víðar væri leitað. Efnisskrá tríósins er samsett af lögum úr ýmsum áttum bæði nýjum og gömlum og góðum og slæðast jafnvel frumsamdir ópusar með. Í janúar 2018 spilaði GHGT á Djangohátíð í Amsterdam í Hörpu þeirra Hollendinga: Bimhuis, við frábærar undirtektir. Í janúar 2019 lék tríóið á nýrri hátíð hér í borginni sem kallast "Django Dagar" og var haldin í Iðnó, þar léku þeir með einvalaliði íslenskra og erlendra tónlistarmanna og var gerður einstaklega góður rómur að leik þeirra.
  

  GHT Tríó skipa:
Gunnar Hilmarsson á gítar
Jóhann Guðmundsson á gítar
Leifur Gunnarsson á kontrabassa
  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger