© 2026 Tix Miðasala
•
24. september
Miðaverð frá
8.900 kr.




Sari Seramor
Sari Seramor er portúgölsk söngkona, lagahöfundur og hljóðfæraleikari með einstaka nærveru og kraftmikla rödd. Tónlist hennar hefur ferðast víða og sækir áhrif í reggae, þjóðlagatónlist, latneska takta og möntrur. Tónheimur sem er hlýr, lifandi og fullur af krafti.
Með röddinni, gítarnum, sögum, spuna og sameiginlegum söng skapar Sari einstaka tengingu við áhorfendur. Kvöldið ferðast frá kyrrum, innilegum augnablikum þar sem tíminn virðist hægja á sér yfir í gleði, dans og kraftmikinn samsöng.
Sari hefur þann sérstaka hæfileika að brjóta niður mörkin á milli sviðs og salar og gera áhorfendur að hluta af því sem verður til í augnablikinu. Söngur, hlátur, hreyfing og tilfinningar fléttast saman í lifandi upplifun þar sem tónlistin fær að leiða ferðina.Kvöldið hefst með tónlist frá Eygló Scheving söngkonu og tónlistarkonu. Eygló fléttar saman möntrum, íslenskri þjóðlagatónlist og eigin tónsmíðum og býður gestum inn í hlýja og nærandi stund áður en Sari stígur á svið.
Sari verður einnig með workshop og kakó ceremóníu laugardaginn 26. september. Miðar og nánari upplýsingar má finna á karmad.is. (https://karmad.is/products/sari-seramor-earlybird-verd-til-10-sept)

