© 2026 Tix Miðasala
Ráðhúsið í Reykjavík
•
4. nóvember
Miðaverð frá
9.990 kr.




Shygirl ásamt Alaska & Joey Christ
Tónleikarnir hafa verið færðir í Tjarnarsalinn í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Miðhafar fá frekari upplýsingar sendar í tölvupósti.
Shygirl kemur með eitt heitasta “club-show” Evrópu til Íslands. Sérstakur IA26 viðburður í Tjarmarsal Ráðhúss Reykjavíkur, þann 4. nóvember.
Shygirl hefur á örfáum árum orðið eitt heitasta nafnið í nýrri bylgju tilraunapopps og club-tónlistar. Með útgáfum á borð við ALIAS is ME, Club Shy og Nymph hefur Shygirl fest sig í sessi sem eitt mest spennandi nafn samtímans.Hún hefur unnið með fjölmörgum listamönnum, gerði m.a. 365 með CharlieXCX. Einnig hefur hún unnið með Troye Sivan, SOPHIE, FKA twigs, Arca, PinkPantheress og okkar eigin Björk.
Joey Christ og Alaska sameina krafta sína og sjá um að rífa stemminguna í gang áður en Shygirl mætir á svið!
Kvöldið fyrir þau sem geta ekki beðið og vilja upplifa Iceland Airwaves stemminguna strax á miðvikudegi!
Miðaverð: 9.990 kr. (standandi)
Umsjón: Iceland Airwaves
Um Alaska og Joey Christ
Á stuttum tíma hefur Alaska stimplað sig inn sem einn mest spennandi tónlistarmaður okkar samtíma. Hljóðheimurinn er hrár og draumkenndur með greinilegu áhrifum úr raf- og öndergránd senunni.
Síðan Joey Christ steig fyrst inn í íslensku rappsenuna árið 2017 hefur hann rutt eigin farveg með sínum einkennandi stíl og auga fyrir samstörfum. Joey er engum líkur.

