© 2026 Tix Miðasala

Menningarfélag Akureyrar
•
27. september
Miðaverð frá
3.500 kr.




Frá Fjöllum til Favelas er tónlistar- og menningarverkefni sem tengir saman brasilíska jazztónlist og íslenskt tónlistarlíf með nýstárlegum hætti.
Fjórir tónlistarmenn á Norðurlandi sameina krafta sína. Annars vegar þeir Guito Thomas gítarleikari og söngvari og Rodrigo Lopez trommusetts- og slagverksleikari sem báðir búa í Fjallabyggð og hins vegar þeir Ludvig Kári Forberg víbrafón- og hljómborðsleikari sem býr á Akureyri og Guðni Bragason rafbassaleikari sem er búsettur á Húsavík. Auk þess koma fram tvær söngkonur sem einnig eru dætur tveggja hljómsveitarmeðlima, þær Ágústa Jenný Forberg og Maya Maricato Lopez. Á tónleikunum verður flutt brasilísk tónlist í ýmsum stílum, blandað efni allt frá 1950 til dagsins í dag.
Segja má að þessir tónleikar komi í kjölfar námsferðar til Nazaré í Brasilíu í júní 2025. Hópur frá Tónlistarskólanum á Akureyri sótti þá "4. Brazilian Music Camp" undir fararstjórn Rodrigo Lopez. Þetta var einstaklega vel heppnuð ferð í alla staði og hafði mikil áhrif á alla sem fóru.
Þetta verða léttir og skemmtilegir tónleikar sem allir ættu að geta notið.
Tónleikarnir eru hluti af Tónleikaröð Tónlistarfélags Akureyrar. Þeir eru haldnir í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar. Styrktaraðilar eru SSNE, Tónlistarsjóður og Akureyrarbær.

