© 2026 Tix Miðasala
Gróska
•
30. september
Miðaverð frá
15.900 kr.




40 ÁR AF ATHYGLI
8+ milljarða áhorf. Hvað þarf til að fanga athygli og halda ?
ÍMARK fagnar 40 ára afmæli þann 30. september og af því tilefni kemur Marion „Maz“ Farrelly til Íslands.
Maz hefur í yfir 30 ár starfað við að skapa efni sem fólk gat ekki hætt að horfa á. Maz hefur í yfir 30 ár starfað við að skapa efni sem fólk gat ekki hætt að horfa á. Hún hefur verið verið driffjöðrin á bak við nokkra af vinsælustu sjónvarpsþáttum heims, Big Brother, The X Factor, The Celebrity Apprentice, Dancing with the Stars og The Weakest Link. Verkefni sem hún hefur komið að hafa, samkvæmt Maz, náð yfir 8 milljörðum áhorfa.
Í dag ferðast Maz um heiminn sem fyrirlesari og ráðgjafi og yfirfærir 30 ára reynslu sína úr sjónvarpi og miðlum yfir á vörumerki, frásögn, sölu og samskipti.
„THAT'S INTERESTING. TELL ME MORE.“
Það er ekki nóg að ná athygli. Þú þarft að vekja áhuga og fá fólk til að vilja vita meira. Maz kallar þessi fimm orð ekki bara hrós - heldur viðskiptalegt forskot.
Erindið verður hratt, beitt, skemmtilegt og hagnýtt, með verkfærum sem hægt er að taka beint með sér inn í vinnuna.
40 ár af athygli snýst þó um meira en Maz. Í tilefni afmælisins ætlum við að líta yfir farinn veg, rifja upp 40 ár af íslenskri markaðssetningu og spyrja hvað hafi breyst - og hvað hafi alls ekki breyst - í baráttunni um athygli.
Og Maz verður ekki ein. Með okkur verða fleiri spennandi gestir úr bransanum sem koma með sín sjónarhorn, sögur og hugmyndir. Við kynnum þá einn af öðrum á næstu vikum.
Kl. 15:00 færum við okkur svo úr hátíðarsal yfir á Parketið í Grósku og höldum áfram saman fram til kl. 17:00 - fögnum 40 ára afmæli ÍMARK með búbblum, léttum veitingum og góðri stemningu.
Fylgist með - fleiri spennandi gestir verða kynntir á næstu vikum. Tryggið ykkur miða á 40 ár af athygli!
30.september 2026 13:00–17:00 Gróska
Félagsmenn ÍMARK: 15.900 kr. Almennt verð: 25.900 kr.
Skráðu þig í ÍMARK á imark.is

