© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
8. nóvember
Miðaverð frá
2.500 kr.




Efnisskrá tónleikanna Þagnarómur hverfist um hinar ýmsu birtingarmyndir þagnarinnar í tungumáli, menningu og sögu. Þar mun KIMI ensemble frumflytja tvö ný verk eftir Guðmund Stein Gunnarsson og Ayu Yoshida, þar sem tónskáldin skoða hvernig þagnarhugtakið birtist í hefðbundinni japanskri ljóðlist sem og í íslensku máli. Einnig mun KIMI flytja eldri verk samin fyrir hópinn; má þar nefna verk eftir ísraelska tónskáldið Udi Perlman sem endurspeglar þöggun palestínskra radda, ásamt verki Kolbeins Bjarnasonar sem samið er við ljóð hins palestínska Refaats Alareers og fjallar um von um betri framtíð. Þá flytja þau verk eftir danska tónskáldið Jeppe Ernst, sem einkennist af spennuþrunginni þögn. Þess má geta að Jeppe hlaut nýverið tilnefningu til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs.
Tónleikarnir eru studdir af Styrktarsjóð Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns.
Tónleikarnir eru um 70 mínútur, með hléi.
KIMI ensemble
Tónlistarhópurinn KIMI ensemble samanstendur af Jónasi Ásgeiri Ásgeirssyni harmóníkuleikara, Katerinu Anagnostidou slagverksleikara og Þórgunni Önnu Örnólfsdóttur söngkonu. Tríóið einblínir einkum á flutning nýrra verka sem samin eru fyrir sérstæða hljóðfærasamsetningu hópsins, í bland við eigin útsetningar á þjóðlagatónlist. Hópurinn hefur undanfarin ár verið að hasla sér völl á sviði samtímatónlistar bæði hérlendis og erlendis og hefur þegar unnið með fjölda tónskálda, s.s. Finni Karlssyni, Þuríði Jónsdóttur, Huga Guðmundssyni, Christos Farmakis, Ásbjörgu Jónsdóttur, o.fl. Hópurinn hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna árin 2021, fyrir tónleika ársins og 2026, sem flytjandi ársins. Fyrsta smáskífa hópsins var gefin út hjá Dacapo Records árið 2021, hljóðritun á verkinu Bittersweet eftir Nick Martin.

