Baggalútur - Geimsteinn 50 ára

Rokkheimur

1. október

Miðaverð frá

5.900 kr.

  Baggalútur - Geimsteinn 50 ára  

  Nú er hálf öld liðin frá því að Rúnar Júlíusson stofnaði hljómplötuútgáfuna Geimstein. Af því tilefni ætla synir hans að taka fyrir þá tónlistarmenn sem komu við sögu á vettvangi útgáfunnar.
Strákarnir í Baggalúti munu kíkja í Geimstein sem telja má vöggudeild hljómsveitarinnar en þar voru fyrstu hljómplötur hennar teknar upp. Auk þess var mikið af jólaföndri því sem Baggalútur hefur sett saman búið til á upptökuheimilinu.
Bragi Valdimar, Kalli, Kiddi og Gummi Páls mæta og segja sögur af bernskubrekum hljómsveitarinnar og flytja mörg af hennar bestu lögum.
Þó nokkur vitleysa verður töluð og annað eins af skemmtilegri tónlist verður flutt.
Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger