© 2026 Tix Miðasala
•
19. september
Sala hefst
19. ágúst 2026, 14:00
(eftir 1 klukkustund)




Vinir og vandamenn: "Hve dátt er hér..."
Alþýðutónlistarhópurinn Vinir og vandamenn, sem að megninu til samanstendur af afkomendum og vinum Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ, býður ykkur til notalegra og hressilegra tónleika og söngstundar. Uppistaðan í tónleikunum verða lög af nýútkominni plötu okkar, "Hve dátt er hér…, sem er aðgengileg á Spotify. Meginefni plötunnar samanstendur af sjaldheyrðari perlum Oddgeirs, Ása og Árna úr Eyjum. Þar á meðal má finna óútgefnar perlur eins og fyrsta Þjóðhátíðarlagið frá 1933, "Setjumst að sumli", Þjóðhátíðarlag 1941, "Dagur og nótt í Dalnum", fallegar vísur sem Ási í Bæ samdi um Sævar í gröf eftir andlát hans, og fleira. Inn á milli blöndum við þekktari og söngvænum Eyjalögum og skjótum inn tveimur nýjum Eyjalögum. Við reynum að flytja lögin í þeim anda sem Oddgeir og félagar gerðu í hvítu tjöldunum eða á skemmtunum í Akóges í gamla daga, þ.e með einföldum hljóðfærum, röddunum og hressilegum og alþýðlegum blæ.
Á tónleikunum tökum við okkur smá tíma í að skoða tilurð og bakgrunn laganna og rýna aðeins í textana, rækta með okkur þakklæti fyrir þann auð sem okkur var gefinn, og næra þannig okkar dýrmætu og sameiginlegu Eyjarætur.
Eftir því sem á kvöldið líður munum við auka hlut ykkar áheyrenda og passa vel upp á það að hver einasti tónleikagestur fái góða útrás fyrir hina vel þekktu og óbrigðulu sönggleði Eyjafólks. Við hvetjum ykkur því til að hlusta vel á plötuna fyrir tónleikana og læra þau lög sem þið ekki þekkið, auk þess að rifja upp klassískar perlur.
Hinn tónlistarlegi menningararfur Vestmannaeyja er einstakur. Lögin og textarnir eru órjúfanlega samofnir sögu Eyjanna og ljóslifandi heimildir um lífsbaráttuna, náttúruna, menninguna, sjómennskuna og litríka karaktera bæjarlífsins. Mörg þessara laga hafa öðlast landsfrægð og ódauðleika, en allnokkur fjöldi þeirra er lítt eða óþekktur, nema af örfáum eldri Eyjamönnum. Ef ekki verður brugðist skjótt við er hætt við að einhver þeirra hreinlega týnist og gleymist, sem yrði mikil synd.
Öllum ágóða af þessum tónleikunum verður varið til að kosta áframhaldandi vinnu Vina og vandamanna við varðveislu þessara sjaldheyrðari Eyjalaga. Með því að kaupa miða á tónleikanna leggur þú þannig þitt af mörkum til að varðveita um ókomna tíð þennan ómetanlega menningararf.

