© 2026 Tix Miðasala

IÐNÓ
•
10. október
Sala hefst
19. ágúst 2026, 10:10
(eftir 16 klukkustundir)




GKR - 10 ára
10 ár eru liðin frá því að GKR gaf út plötuna „GKR“ í formi morgunkornspakka í Kjötborg og því ber að fagna!
Tónleikarnir sem fara fram í Iðnó munu líkt og allt sem GKR gerir vera einstök upplifun.
Þann 10. október fyllir GKR Iðnó ásamt vel völdum gestum. Þetta eru fyrstu miðasölutónleikar GKR á Íslandi í 9 ár og einstakt tækifæri til að taka á móti honum á heimavelli.
Hann er loksins fluttur heim eftir 5 ára dvöl í Noregi og getur ekki beðið eftir að sýna ykkur hvað hann hefur lært.
GKR ættu allir íslenskir tónlistarunnendur að þekkja en hann kom fram á sjónarsviðið árið 2015 með laginu sínu "Morgunmatur". Í dag er hann einn fremsti rappari landsins, þekktur fyrir rafmagnaða sviðsframkomu, framúrstefnuleg tónlistarmyndbönd og að koma íslensku rappi á framfæri erlendis.
UPPHITUN: Tatjana & Ungur Orri
Takmarkaður fjöldi miða á forsöluverði:
(linkur hér)
SJALDGÆFUR VIÐBURÐUR.
HÆTTULEGA GÓÐIR TÓNLEIKAR.

