Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu

Tjarnarbíó

27. september

Miðaverð frá

4.900 kr.

Barnaleikritið Heimsókn í leikhúsið hennar Thalíu er ferðalag inn í ævintýraheim leikhússins. Áhorfendur kynnast litríkum  persónum sem vinna á bak við tjöldin og hitta leiklistargyðjuna Thalíu sem segir þeim frá töfrum leiklistarinnar. Þungamiðja verksins er leikhúsið sjálft og fólkið sem vinnur þar. Áhorfendur rekast á leikhússtjórann, fá að fylgjast með leikaranum æfa leiktextann sinn og fá innsýn í vinnu leikstjórans, sminkunnar (förðunarmeistarans) og leikmynda- og búningahönnuðarins. Verkið hefst í anddyri leikhússins og ferðast með áhorfendur inn á leiksviðið þar sem óvæntir atburðir eiga sér stað. Í gegnum verkið kynnast ungir áhorfendur leikhúsinu og verða um leið þátttakendur í spennandi ævintýri þar sem drekar, prinsar og prinsessur koma við sögu. Verkið hlaut styrk frá Sviðslistasjóði og List fyrir alla.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger