© 2026 Tix Miðasala
Margar staðsetningar
•
27. - 28. desember
Miðaverð frá
5.900 kr.




Árstíðir - Hátíðartónleikar
Hljómsveitin Árstíðir heldur sína árlegu hátíðartónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 27. desember og í Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30. desember.
Hátíðartónleikar Árstíða hafa verið haldnir á hverju ári frá árinu 2008 og hefur myndast stórskemmtileg hefð í kringum þá. Á tónleikunum leikur sveitin eigið efni í bland við vel valin hátíðar- og jólalög. Hljómsveitin verður nýkomin heim af tæplega mánaðar löngu tónleikaferðalagi í Evrópu í nóvember og desember - og má því búast við samstilltri sveit í feiknargóðu formi.
Árstíðum til halds og trausts á tónleikunum verða bassasöngvarinn Pétur Oddbergur Heimisson og franskur strengjadúett sem samanstendur af sellóleikaranum Guillaume Lagraviére og fiðluleikaranum Jean-Samuel Bez - en þeir koma reglulega fram með sveitinni á tónleikum erlendis.
Ekki missa af einstakri hátíðarstemningu með Árstíðum í Fríkirkjunni í Reykjavík og Akureyrarkirkju á milli jóla og nýars.

