Styrktartónleikar Barnaheilla - byggjum skóla í Síerra Leóne

Salurinn

6. september

Miðaverð frá

7.900 kr.

Mugison, Ellen Kristjánsdóttir, KK, Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben og Hipsumhaps koma fram á tónleikum Barnaheilla til að safna fyrir nýjum barnaskóla í afskekkta þorpinu Macca í Síerra Leóne.

Barnaheill - Save the Children á Íslandi fjármagna bygginguna og þarfnast þinnar aðstoðar. Með því að kaupa miða á tónleikana leggur þú þitt af mörkum til að bæta menntun og námsaðstæður barna í Macca.

Ákveðið var að ráðast í byggingu skólans eftir heimsókn Barnaheilla til Síerra Leóne, en þar vinnum við að umfangsmiklu verkefni sem miðar að því að vernda börn gegn ofbeldi. Aðgengi verður tryggt fyrir öll börn, rampar og handrið sett upp auk þess sem borað verður fyrir vatni og gerður brunnur sem einnig nýtist íbúum í þorpunum í nágrenni við Macca.

Ef þú kemst ekki á tónleikana en vilt styrkja verkefnið er tekið við framlögum hér:

Banki: 0327 - 26 -1989

Kt. 521089-1059

Skýring: SKÓLI

Takk fyrir þitt framlag. Byggum saman skóla í Síerra Leóne.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger