Heimatónleikar á Ljósanótt 2026

Reykjanesbær

4. september

Miðaverð frá

4.900 kr.

Heimatónleikar á Ljósanótt 2026

Eftirtaldir listamenn munu koma fram á Heimatónleikunum á Ljósanótt 2026. Að venju ættu allir að geta fundið eitthvað við hæfi.  

  Valdimar - Brunnstíg 3  
Það verða læti, ó la-la-la læti á Brunnstíg þegar básúnuleikarinn, lagahöfundurinn og söngvarinn Valdimar Guðmundsson stígur á pall með sína persónulegu sviðsframkomu er hann syngur með hlýrri og kröftugu rödd fyrir tónleikagesti á Heima í gamla bænum. Ásgeir Aðalsteinsson leikur undir á gítar.

Valdimar kann að skapa einlæga stemningu í bland við húmor. Keflvíkingurinn er framar mörgum söngvurum sinnar kynslóðar og hefur skipað sér fastan sess í íslensku tónlistarlífi.

Því er fyrirfram hægt að lofa Ryðguðum dans og góðri stemningu.

Tónlistargestir Stimpla sig út kl. 23  

  Hljómsveitin Dr.Gunni - Mánagötu 11  
  Hljómsveitin Dr.Gunni er landsmönnum vel kunn. Ætli það megi ekki rekja sögu sveitarinnar aftur til lokaára síðustu aldar og hefur hún á starfstíma sínum gefið út fjölmargar plötur þar sem ferskleikinn og spilagleðin er alsráðandi.

Hljómsveitin er þekkt fyrir að taka hvorki sig né aðra of alvarlega, síðpönk og sörf, nýbylgjupopp ásamt þéttu rokki er eitthvað sem hljómleikagestir mega eiga von á ásamt þéttleika og almennri skemmtun hjá hljómsveit sem slær ekki feiltakt þegar stigið er á stokk.

Hljómsveitina skipa Grímur Atlason, Kristján Freyr Halldórsson, Guðmundur Birgir Halldórsson og svo auðvitað doktorinn sjálfur, Gunnar Lárus Hjálmarsson.  

  Jónsi - Íshússtíg 14

Söngvarinn og orkuboltinn Jónsi mun mæta ásamt fríðu föruneyti og rífa upp stuðið í rosalegasta garðpartíi ársins. Það verður allt betra ef þú mætir því mæting er bæting.  

  Nostalgía - Vallargötu 10 

  Drengirnir úr hljómsveitinni Nostalgíu munu halda uppi heiðri Bítlabæjarins og spila eingöngu lög eftir listamenn héðan af svæðinu. Við erum að tala um lög með Hljómum, Hjálmum, Valdimar, Ðe lónlý blú boys, GCD, Rúnari Júlíussyni, Gunnari Þórðarsyni og fleirum sem eiga rætur að rekja til Keflavíkur.  Sannkölluð rokkveisla í boði Nostalgíu.    

Deep Jimi and the Zep Creams - Skólaveg 12 

Deep Jimi and the Zep Creams snýr aftur á svið

Löngu áður en tribute-tónleikar urðu vinsælir á Íslandi ruddi Deep Jimi and the Zep Creams brautina. Á tíunda áratugnum lék hljómsveitin fyrir troðfullu húsi á Tveimur vinum, Gauk á Stöng og Púlsinum, þar sem seventís rokkið lifnaði við af krafti sem fáir gleyma.

Nú, örfáum árum síðar (tíminn líður hratt), kemur sveitin saman á ný á æskuheimili sínu að Skólavegi 12, til að flytja ódauðleg lög meistaranna Deep Purple, Jimi Hendrix, Led Zeppelin og Cream.

Þetta eru endurfundir hljómsveitar, vina og rokkaðdáenda sem muna tímana þegar húsið nötraði og kvöldin urðu lengri en áætlað var.

Ef þú varst þar veistu nákvæmlega við hverju má búast.

Ef þú misstir af, þá er þetta tækifærið.

Eitt kvöld

Einn konsert  

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger