Upprásin | Synthea Starlight, Smurjón, Sót

Harpa

13. apríl

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram Synthea Starlight, Smurjón og Sót.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

  Synthea Starlight er frá jörðinni og spilar jarðardiskó. Sveitina skipa Jara og Thoracius Appotite. Jara hefur gefið út tónlist undir eigin nafni og samið tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir. Thoracius hefur gefið út tónlist undir eigin nafni og undir listamannanafninu Just Another Snake Cult. Hann hefur spilað með hljómsveitum svo sem Monsters From Mars og pródúserað plötur fyrir aðra listamenn. 

  Smurjón er skemmtileg síbreytileg hljómsveit sem kemur öllum í stuð með undarlegri og hressri músík. Hún hefur spilað tvisvar sinnum á Airwaves og tók sér svo um áratugs dvala þar til hljómsveitin var vakin upp nýlega til þess að spila fyrir súrrealista á Norðurslóðum. Smurjón nýtur þess að nota margskonar hljóðfæri og spila eitthvað sem heyrist ekki á hverju strái. Sveitina skipa Hörður Bragason, Katrín Oktavía Harðardóttir, Ingibjörg Azima Guðlaugsdóttir, Eiríkur Stephensen, Ólafur Sverrir Stephensen, Úlfhildur Júlía Stephensen, Rúnar Gunnarsson, Sighvatur Ómar Kristinsson, Björn Jónsson, Kristinn H Árnason.

  Synthea Starlight er frá jörðinni og spilar jarðardiskó.  

  

  

SÓT er þung og drungaleg metalhljómsveit með grípandi takta og sækadelísk áhrif. Sveitin hefur nýlega rutt sér til rúms í íslensku neðanjarðarmetalsenunni og er þekkt fyrir kraftmikla tónleika og magnaða sviðsframkomu. Sveitina skipa Arnar Smári Sigurðsson, Aron Freyr Ívarsson, Daníel Hrafn Ingvarsson, Ívar Leo Hauksson og Ísleifur Jónsson.

„Þung, drungaleg og á köflum sækadelísk – fyrsta plata SÓT er öflug viðbót við glæsilega flóru íslensks metal. Ef þið fáið tækifæri til að sjá þau á tónleikum, verið þá vera viðbúin(n) því að finna fyrir titringnum í beinunum.“ — Dunder

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger