Upprásin | Spouses, Brenninetla, ÞESAL

Harpa

17. nóvember

Miðaverð frá

2.000 kr.

Á þessum tónleikum koma fram Spouses, Brenninetla og ÞESAL.

Harpa, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Rás 2, stendur fyrir Upprásinni, tónleikaröð sem tileinkuð er grasrót íslenskrar tónlistar, þvert á tónlistarstefnur.

Upprásin fer nú fram fjórða árið í röð og munu samtals 27 hljómsveitir koma fram, þrjár á hverju tónleikakvöldi. Tónleikaröðin er liður í því að framfylgja dagskrárstefnu Hörpu um bætt aðgengi grasrótar og ungs fólks í öllum tónlistargreinum og auka við fjölbreytni. Markmiðið er einnig að tónlistaráhugafólk geti gengið að því vísu að heyra fjölbreytta nýja íslenska tónlist, beint úr grasrót tónlistarlífsins, flutta við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar. Miðaverð er aðeins 2000 kr. en hægt er að leggja til hærri upphæð í miðasöluferlinu sem rennur beint til listafólksins.

-

Spouses er tónlistarverkefni kanadíska tónlistarmannsins Joel Durksen en hann hefur verið búsettur á Íslandi frá 2023. Hann sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, I Could Be Your Dog, í maí 2026 en platan var tekin upp í gömlu hesthúsi sem Joel Durksen hefur umbreytt í hljóðver.   

Áður en Joel flutti til Íslands hafði hann átt blómlegan tónlistarfólki svo svo sem Brad Stank, Dent May, and Two Blinks I Love You. Undanfarin ár hefur hann einbeitt sér að eigin lagasmíðum.

-

Brenninetla er djasstríó skipað þeim Kjartani Huga (saxófónn), Stígi Grendal (gítar og bassi) og Hinriki Torfa (trommur). Hljómsveitin byrjaði sem spunadúó hjá Kjartani og Hinriki, en þegar þeir fengu Stíg með í verkefnið þróaðist hljómsveitin í kraftmikið tríó sem vinnur með allskonar hugmyndir. Tónlist sveitarinnar byggir á djassi og frjálsum spuna, en sækir líka áhrif í alls konar aðrar áttir. Tríóið leggir að leyfa tónlistinni að þróast náttúrulega í augnablikinu svo engir tónleikar verði  eins. Brenninetla lenti í 2. sæti á Músíktilraunum 2026, þar sem sveitin vakti athygli fyrir spunadrifinn og kraftmikinn flutning. Þar hlaut Stígur Grendal einnig verðlaun sem „Besti gítarleikari“ keppninnar.

-

Poppbandið ÞESAL er ekki hefðbundin hljómsveit, heldur upplifun sem minnir á sýrutripp. Það er teiknimyndageimveran Marens sem stýrir ferðinni með geimskipinu sínu og handteiknuðum „visuals“. Bandið sérhæfir sig í grípandi hljómheimum, húmorískum textasmíðum og rafmagnaðri sviðsorku, enda er bandið skipað þremur prófessional partýljónum sem eru ófeimin við að blanda saman tónlist, early 2000s teiknimyndastíl og dansstemmningu í eina risastóra kjarnorkupartýsprengju. ÞESAL skipa Ómar Vídó, Kata Backmann og Guðmundur Elí.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger