© 2026 Tix Miðasala
Sviðið, Selfossi
•
30. október
Miðaverð frá
6.490 kr.




Feita hjartað
Feita hjartað er gamansýning frá einum ástsælasta ástmegi þjóðarinnar.
10 uppseldar sýningar á síðast vetri.
Sýningin hefur jafnframt verið sýnd fyrir fullu húsi í vetur. Maðurinn sem einnig hefur verið nefndur Gene Hackman sinnar kynslóðar, maðurinn sem er bæði barnabarn og nafni nóbelsskáldsins, sjónvarpsmaðurinn, rapparinn, leikarinn, skáldið, höfundurinn og nautnaseggurinn hefur fyrir löngu sigrað þjóðina og gerir fátt betur en að koma fólki til að hlæja.
Í sýningunni Feita hjartað kafar Dóri ofan í kviku tilverunnar og skoðar sjálfan sig að innan. Þar er margt að finna sem gaman er að segja frá og enn meira gaman að hlusta á.
Sýningin er stranglega bönnuð innan 16 ára og þarf að vera í fylgd með fullorðnum frá 16-18 ára.

