© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
9. ágúst
Miðaverð frá
0 kr.




Er hægt að leysa lífsgátuna á fimm dögum?
Er tilhugalíf flóknara í flóknari heimi eða er þetta alltaf það sama? Hópur sviðslistafólks skoðar þessar vangaveltur og margar fleiri út frá líkamlegri leiklist á einungis fimm dögum á vinnustofu undir handleiðslu Eyvindar Karlssonar.
Þessi sýning er eins konar uppskeruhátíð þar sem áhorfendum býðst einstakt tækifæri til að sjá afrakstur líkamlegrar vinnu í anda leikfélaga á borð við Frantic Assembly og Gecko, þar sem hópurinn skrifaði, æfði og útfærði leikverk frá grunni á þessum örskamma tíma.
Aðeins ein sýning.

