© 2026 Tix Miðasala
Mývatn
•
31. október
Miðaverð frá
9.900 kr.




Oktoberfest Mývatn Öl 2026
Helgina 30. og 31. Október og verður Oktoberfest Mývatn Öl haldið í annað sinn á Sel-Hótel Mývatni.
Þessa helgi mun Sel-Hótel Mývatn breytast í líflega og litríka lederhosen bjórhátíð þar sem bjórinn rennur, tónlistin ómar og gleðin ræður ríkjum. Þetta er sannkölluð bjórhátíð í anda Bæjaralands með einstöku íslensku ívafi. Fjölmörg brugghús víðsvegar af landinu mæta með úrval af sínum bestu handverksbjórum, allt frá klassískum lagerum til sérlega frumlegra og bragðmikilla brugga.
Lykilpunktar:
• 🍻 Úrval af handverksbjórum frá bestu brugghúsum landsins.
• 🎵 Lifandi þýsk þjóðlaga tónlist á föstudagskvöldinu og heimamaðurinn Stebbi Jak á laugardagskvöldinu.
• 🍗 Ljúffengur matur í anda þýsku Októberfest-tradisjónarinnar með íslensku ívafi.
• 🎉 Hátíðarsalur skreyttur í sannkölluðum Oktoberfest-stíl.
• 👒 Hvetjum gesti til að mæta í þýskum búningum – verðlaun fyrir besta dressið!
Októberfest Mývatn Öl 2026 verður ógleymanleg helgi þar sem menning, matur og bjór mætast. Fjöldi miða er takmarkaður þannig tryggðu þér miða sem fyrst til að tryggja það að þú verður með þegar bjórhátíðin fer fram á Sel-Hótel Mývatni!
ATH: Það er ekki hægt að bóka bara gistingu þessa helgi, einungis er boðið upp á pakka sem inniheldur bæði hótelherbergi og aðgang að hátíðinni. Pakkana má bóka vefsíðu Sel-Hótel Mývatns.
Ef þið hafið einungis áhuga á að kaupa aðgang á októberfestið er það gert í gegnum TIX.
Hlökkum til að skála saman í haust!

