© 2026 Tix Miðasala

Bíó Paradís
•
5. ágúst
Miðaverð frá
3.900 kr.




Trashmaster er nýjasta sköpunarverkið frá Vesen Backstage – paródískur panelþáttaviðburður fyrir hinsegin fólk sem fílar djók, drag, dívur, og heilbrigðan skammt af usla, ásamt því að kinka kolli að alþjóðlegu grínþáttaseríunni Taskmaster (sem viðburðurinn tengist að engu leiti, og er algjörlega aðskilinn frá), og annarra panel- leikjaþátta.
Við tökum yfir sal 2 í Bíó Paradís og fáum til okkar þátttakendur úr hinsegin sviðslistum til að keppa í áskorunum sem eru hver annarri kaotískari - en þó allar að einhverju leiti tengdar sviðslistum og performans.
Þátttakendur eru alþjóðlega kabarettan Daphne Always, burlesque-bomban Bobbie Michelle, dansandi dragdívan Agatha P., hin óviðjafnanlega Ava Gold, og hávaxnasta ljóska Reykjavíkur, Úlla la Delish.
Viðburðurinn fer fram á ensku.

