Óperudagar 2026: Þunnt skæni á logandi vök

Óperudagar

31. október

Miðaverð frá

4.500 kr.

Kammeróperan Þunnt skæni á logandi vök á sér sögu.

Óperan er upprunalega samin við líbrettó ástralsks höfundar og var flutt fyrst í Reykjavík 2021 í miðjum faraldri og síðan í Ástralíu árið 2023. Hún fjallaði á heimspekilegan og dramatískan hátt um skógarelda sem eru mikil ógn víða í Ástralíu.

Af ýmsum ástæðum var ákveðið að snúa óperunni að hluta til upp á íslenskan veruleika. Magnea J. Matthíasdóttir tók að sér að gera nýtt libretto, ljóðabálk. Eldtengingunni var haldið en ógnin hér á landi er ekki skógareldar heldur eldgos eins og fólkið á Suðurnesjum hefur orðið áþreifanlega vart við síðustu ár. Þannig að ljóðið fjallar núna bæði um eld úr iðrum jarðar og eld að ofan, svörtu sængina sem getur bæði verið kulnað hraun og brunninn skógur og land. Ljóðið er skrifað frá sjónarhorni lands og náttúru, Gaiu sjálfrar, hún lýsir endalokum og nýju upphafi. Hlustandanum er í sjálfsvald sett hvort hann sér mannkyn fyrir sér vera hluta af hinu nýja upphafi eður ei.

Óperan er í 8 köflum, mjög ólíkum og gerir gríðarlegar kröfur til einsöngvarans. Tónsvið er mjög stórt og söngvarinn þarf að ráða yfir allt frá örveikum söng til fulls styrks. Hljóðfæraleikararnir hafa einnig krefjandi hluti að kljást við. Hallveig Rúnarsdóttir, ein okkar bestu sópransöngkvenna var flytjandi verksins í fyrra formi bæði hér heima og í Ástralíu og kammerhópurinn Camerarctica sem er skipaður hljóðfæraleikurum í fremstu röð tók þátt í flutningnum í Reykjavík árið 2022.

Þátttakendur

Ármann Helgason, bassaklarinett

Bryndís Pálsdóttir, fiðla

Hallveig Rúnarsdóttir, sópran

Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla

Hildigunnur Rúnarsdóttir, tónskáld

Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger