Óperudagar 2026: Þunnt skæni á logandi vök

Óperudagar

•

31. október

Miðaverð frá

2.000 kr.

Kammeróperan Þunnt skæni á logandi vök er spennandi ný ópera eftir tónskáldið Hildigunni Rúnarsdóttur við texta Magneu J. Matthíasdóttur sem byggir á þeim eldumbrotum sem við höfum lifað við undanfarin ár.

Ljóðið fjallar um eld úr iðrum jarðar og eld að ofan, svörtu sængina sem getur bæði verið kulnað hraun og brunninn skógur og land. Ljóðið er skrifað frá sjónarhorni lands og náttúru, Gaiu sjálfrar, hún lýsir endalokum og nýju upphafi. Hlustandanum er í sjálfsvald sett hvort hann sér mannkyn fyrir sér vera hluta af hinu nýja upphafi eður ei.

Óperan er í 8 köflum, mjög ólíkum og gerir gríðarlegar kröfur til einsöngvarans. Tónsvið er mjög stórt og söngvarinn þarf að ráða yfir allt frá örveikum söng til fulls styrks. Hallveig Rúnarsdóttir, ein okkar bestu sópransöngkvenna mun flytja verkið ásamt hinum þekkta  kammerhóp Camerarctica sem er skipaður hljóðfæraleikurum í fremstu röð.

Í ágúst var kammeróperan frumflutt í gömlu, yfirgefnu síldartönkunum á Raufarhöfn, þar sem hrár efniviðurinn gaf upplifuninni nýja dýpt. Langt frá skógareldum og eldsumbrotum, en á sama tíma í hráu og áhrifamiklu umhverfi. Nú verður verkið flutt á Óperudögum í Hörpu, þar með kvikmynda- og ljósmyndasýning Ásdísar Thoroddsen skapar innblásna umgjörð utan um verkið.

Þátttakendur

Ármann Helgason, bassaklarinett

Bryndís Björgvinsdóttir, selló

Bryndís Pálsdóttir, fiðla

Hallveig Rúnarsdóttir, sópran

Hildigunnur Halldórsdóttir, fiðla

Hildigunnur Rúnarsdóttir, tónskáld

Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger