HAM - Endalok alls

Harpa

20. nóvember

Sala hefst

4. september 2026, 12:00

(eftir 3 daga)

  HAM: Endalok alls — Útgáfutónleikar í Eldborg 

Þann 20. nóvember heldur hljómsveitin HAM tónleika í Eldborg til að fagna útkomu nýrrar breiðskífu, Endalok alls. Á tónleikunum verða flutt lög af plötunni ásamt úrvali efnis af löngum og litríkum ferli sveitarinnar. 

Platan var tekin upp í Sýrlandi og Langholtskirkju í sumar undir stjórn Arnars Guðjónssonar. Að vinnslu hennar komu einnig að góðir gestir: Úlfur Eldjárn, Steinunn Eldflaug Harðardóttir og Kristjana Stefánsdóttir. Þetta einstaka tónlistarfólk mun koma fram með HAM á tónleikunum. 

Platan kemur út á streymisveitum í október og á tvöföldum vínyl í nóvember. Aðdáendur HAM munu ekki aðeins fá að njóta laga af þessari nýju plötu því helstu perlur sveitarinnar verða einnig fluttar á tónleikunum. Með fulltingi góðra gesta má búast við að eldri lög hljómi í enn stærri og tilkomumeiri útsetningum en tónleikagestir eiga að venjast — kvöldið verður hrein og klár veisla. 

Þetta er kvöld sem enginn aðdáandi HAM vill missa af.   

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger