Harpa

•

6 sýningar

Miðaverð frá

7.900 kr.

Þau lifðu af til að segja frá


Þann 15. nóvember 1978 brotlenti flugvél Flugleiða, Leifur Eiríksson, við flugvöllinn í Kólombó á Sri Lanka með 262 manns innanborðs. Flugslysið er það mannskæðasta í íslenskri flugsögu og var á þeim tíma fjórða mesta flugslys allra tíma. Af þeim þrettán Íslendingum sem voru um borð komust fimm lífs af. Þetta er þeirra saga.

Útkall er heimildaleikverk þar sem fimm leikarar setja sig í spor íslensku eftirlifendanna og endurupplifa atburðina frá þeirra sjónarhorni. Áhorfendur geta átt von á átakanlegri en um leið fallegri leikhúsupplifun um mikilvægi þess að tala um áföllin sem við verðum fyrir. Því ef það er eitt sem áföll eins og flugslysið á Sri Lanka hafa sýnt okkur, er að á sorgarstundum eiga Íslendingar eina sál þegar á reynir. Þá eykst samlyndi og styrkur eflist.

Leikritið er byggt á Útkalls bók Óttars Sveinssonar, Leifur Eiríksson brotlendir, en bókaflokkurinn hefur verið eitt vinsælasta lesefni Íslendinga í áratugi. Leikgerðin er unnin af Fjölni Gíslasyni leikara og Magnúsi Thorlacius leikstjóra.

Sýningin er helguð þeim sem létu lífið í slysinu og aðstandendum þeirra.

Listrænir aðstandendur:
Leikstjórn: Magnús Thorlacius
Leikgerð: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius
Byggt á bók eftir: Óttar Sveinsson
Leikarar: Berglind Halla Elísdóttir, Ellen Margrét Bæhrenz, Fjölnir Gíslason, Kristín Þorsteinsdóttir og Ýr Aimée Gautadóttir Presburg

Tónlist og hljóðmynd: Anna Róshildur Benediktsdóttir

Kór á sviði: Flugfreyjukór Icelandair

Leikmynd og ljósahönnun: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger