Útkall - Leiksýning: Flugslysið á Sri Lanka

Harpa

9. - 20. desember

Miðaverð frá

7.900 kr.

  Útkall, einn vinsælasti bókaflokkur Íslands, verður að leiksýningu. 

Mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar. 

Þann 15. nóvember 1978 brotlenti flugvél Flugleiða, Leifur Eiríksson, við flugvöllinn í Kólombo á Sri Lanka. Af þeim 262 manns sem voru um borð komust einungis 79 lífs af, sem gerði brotlendinguna að fjórða mesta flugslysi sögunnar á þeim tíma. Af þeim sem komust af voru fimm Íslendingar. Sögu þessara einstaklinga verða gerð skil í fyrstu Útkalls leiksýningunni sem verður frumsýnd í Hörpu í desember 2026. 

Aðdraganda slyssins, ólíkum sjónarhornum af hrapinu, björgunaraðgerðunum og eftirmálunum hafa verið gerð skil í Útkalls-bók Óttars Sveinssonar, Leifur Eiríksson brotlendir. Bókin byggir á viðtölum við eftirlifendur slyssins, aðstandendur og aðra flugáhafnarstarfsmenn sem voru á flugvellinum þegar brotlendingin átti sér stað. Nú verður sagan að leiksýningu þar sem fimm leikarar munu setja sig í spor íslensku eftirlifendanna og endurlifa atburðina frá upphafi til enda; ónotatilfinninguna í loftinu dagana fyrir slysið, augnablikin þegar vélin kom of snemma niður úr þrumuskýjunum, geðshræringuna þegar eftirlifendurnir ranka við sér hver á sínum stað úti í skógi og reyna að púsla saman hvað hafði gerst, hræðilegu aðstæðurnar á spítalanum úti, hvernig þeim var loks komið aftur til Íslands og hvernig slysið átti eftir að lifa með þeim alla tíð síðan. 

Á þessum tíma var engin áfallahjálp til. Eftirlifendurnir eða aðstandendur þeirra fengu enga sálfræðimeðferð til að vinna úr áfallinu og voru þau meira en minna öll farin að fljúga aftur nokkrum mánuðum eftir slysið. Hins vegar hafa þau reglulega rifjað upp slysið, verið fengin til að lýsa því og hefur það hjálpað þeim að vinna úr áfallinu. Eina kvöldstund í einu mun leikhópur úr fremstu röð sjálfstæðu leikhússenunnar gera sögu þessara einstaklinga skil á heiðarlegan, nærgætinn en átakanlegan hátt og heiðra minningu þeirra sem létust. 

Ef það er eitt sem áföll eins og flugslysið á Sri Lanka hafa sýnt okkur, er að á sorgarstundum eiga Íslendingar eina sál þegar á reynir. Þá eykst samlyndi og styrkur eflist. 

Leikgerðin er unnin af Fjölni Gíslasyni, leikara og Magnúsi Thorlacius, leikstjóra. Fjölnir hefur verið áberandi í leikhússenunni síðustu ár en hann hefur farið með eftirminnileg hlutverk m.a. í Kannibalen, Undir, Carmen og í Jónsmessunæturdraumi, ásamt því að halda uppi hlaðvarpinu Já OK ásamt Vilhelm Neto svo fátt eitt sé nefnt. Magnús hefur einnig sett mark sitt á leikhússenuna síðustu ár, og lýkur meistaranámi í leikstjórn við LAMDA í London núna í haust. Hann hlaut töluverða athygli fyrir leiksýninguna Skeljar sem sýnd var í Ásmundarsal þarsíðasta vetur sem var tilnefnd til Grímunnar sem leikrit ársins og hefur nú verið gefin út á bók.  

  

Leikstjórn: Magnús Thorlacius

Leikgerð: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius

Byggt á bók eftir: Óttar Sveinsson

Leikarar: Berglind Halla Elísdóttir, Fjölnir Gíslason, Kristín Eiríksdóttir og Ellen Margrét Bæhrenz

Ljósahönnun: Fjölnir Gíslason og Magnús Thorlacius

Framleiðsla: SPOTLIGHT

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger