© 2026 Tix Miðasala

Menningarfélag Akureyrar
•
24. október
Miðaverð frá
9.900 kr.




Karlakór Eyjafjarðar fagnar 30 ára afmæli sínu með stórtónleikum í Hofi á Akureyri þar sem léttleiki í lagavali og flutningi verður í fyrirrúmi. Á efnisskránni verða lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla hljómsveita eins og t.d. Gauta, Ingimars Eydal, Skriðjökla, Greifanna, Baraflokksins, Póló og Bjarka og Magnúsar Eiríkssonar. Einnig verða flutt lög eftir Óðin Valdimarsson, Bjarna Hafþór og Eirík Bóasson. Þá verða einnig flutt sígild kórlög eins og t.d. úr Vesalingunum.
Einsöngvarar verða stórsöngvararnir:
Magni Ásgeirsson og Snorri Snorrason ásamt félögum úr röðum kórsins.
Daníel Þorsteinsson píanóleikari fer fyrir hljómsveitinni en hana skipa meðal annarra:
Emil Þorri Emilsson, trommur
Stefán Ingólfsson, bassi
Kristján Edelstein, gítar
Sóley Einarsdóttir, trompet
Vilhjálmur Sigurðsson, trompet
Michael Weaver, klarinett, saxófónn, flauta.
Stjórnandi: Guðlaugur Viktorsson
Karlakór Eyjafjarðar býður ykkur velkomin á einstaka tónleika þar sem þekkt lög munu vekja upp endurminningar um ljúfar stundir liðinna áratuga.

